Laugardaginn 23. nóvember kl. 13-15 býður Hafnarborg upp á fjöltyngda listasmiðju þar sem arabísk leturtákn verða innblástur fyrir listræna sköpun undir leiðsögn listamannanna Yöru Zein og Ingunnar Fjólu Ingþórsdóttur. Tungumál smiðjunnar eru íslenska, enska og arabíska.
Í smiðjunni verður börnum og fullorðnum boðið að búa til fallegar og litríkar kúlur með arabískri skrautskrift. Allur efniviður verður á staðnum, svo sem málning, stenslar, pappír og pennar, sem þátttakendur nota til að skapa sín eigin hangandi listaverk til að taka með heim.
Yara Zein (f. 1995) er líbönsk listakona búsett á Íslandi. Hún er með BA-gráðu í myndlist og arkitektúr frá Académie libanaise des beaux arts í Beirút og MFA í myndlist frá Nottingham Trent-háskólanum, Englandi.
Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir (f. 1976) er íslensk listakona búsett í Hafnarfirði. Hún er með MA-gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands, auk BA-gráðu í listasögu frá Háskólanum í Árósum. Ingunn Fjóla er jafnframt stofnandi GETU – hjálparsamtaka sem styðja við flóttafólk og hælisleitendur í Hafnarfirði og nágrenni.
Á mínu máli er viðburðaröð sem miðar að því að auka aðgengi fólks með margs konar bakgrunn að Hafnarborg með því að bjóða gesti velkomna á ólíkum tungumálum. Viðburðurinn er samstarf Hafnarborgar og GETU – hjálparsamtaka. Viðburðaröðin er styrkt af safnasjóði.
Smiðjan er opin öllum aldurshópum en hvorki er krafist þekkingar á arabískri leturgerð né reynslu af listsköpun. Smiðjan fer fram á jarðhæð safnsins og skulu börn vera í fylgd með foreldri eða forráðamanni. Eins og alltaf er þátttaka í smiðjum sem og aðgangur að sýningum safnsins ókeypis.