Sunnudaginn 16. febrúar kl. 14 býður Tónagull í samstarfi við Hafnarborg upp á fjöltyngda tónlistarsmiðju fyrir fjölskyldur með ung börn (0-4) ára. Í smiðjunni skemmta bæði börn og foreldrar sér við að syngja söngva og þulur, hreyfa sig og leika með litríka klúta, auk þess að spila á ýmis smáhljóðfæri sem eru sérstaklega valin fyrir þennan aldurshóp. Markmiðið með smiðjunni er að efla gleði og vellíðan í gegnum tónlist og hreyfingu, jafnt fyrir börn og foreldra.
Námskeiðsefnið sjálft er þróað af Helgu Rut Guðmundsdóttur, prófessor í tónmennt við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, og hefur verið í boði samfellt frá árinu 2004. Hafnarborg hefur svo verið samstarfsaðili Tónagulls síðan vorið 2020 þegar fyrst var boðið upp á reglulegar tónlistarsmiðjur á pólsku í safninu. Þá vekjum við sérstaka athygli á því að hvorki er krafist fyrri reynslu af tónlist né þarf að kunna íslensku til að taka þátt í smiðjunni – allar fjölskyldur, óháð móðurmáli og menningarbakgrunni, eru hjartanlega velkomnar. Tónagull er fyrir alla!
Leiðbeinandi er Natalia Duerte Jeremías.
Hægt að kynna sér aðferðafræði Tónagulls nánar á tonagull.is.