Sumarnámskeið 2023 – myndlist og tónlist

Hafnarborg býður upp á myndlistar- og tónlistarnámskeið fyrir börn á aldrinum 6–12 ára í sumar, líkt og fyrri ár. Farið verður í rannsóknarleiðangra og undirstöðuatriði myndlistar kynnt í gegnum rannsóknir á umhverfinu, sýningar í safninu og skapandi vinnu. Unnin verða verkefni í fjölbreytta miðla – teiknað, málað og mótað – með það að markmiði að þjálfa sjónræna athygli, örva skapandi hugsun og persónulega tjáningu barnanna.

Í boði eru þrjú 5 daga námskeið fyrir aldurshópana 6–9 ára og 10–12 ára. Þá verður námskeiðið sem hefst þann 26. júní með tónlistar- og söngívafi í tengslum við Sönghátíð í Hafnarborg. Lýkur því námskeiði með þátttöku barnanna í fjölskyldutónleikum á Sönghátíð föstudaginn 30. júní kl. 17.

Myndlistarkennari er Unnur Mjöll S. Leifsdóttir og tónlistarkennari er Björg Ragnheiður Pálsdóttir.


Boðið verður upp á eftirfarandi sumarnámskeið:

12. júní–16. júní
6–9 ára: kl. 9:00–12:00
10–12 ára: kl. 13:00–16:00

19. júní–23. júní
6–9 ára: kl. 9:00–12:00
10–12 ára: kl. 13:00–16:00

26. júní–30. júní
6–9 ára: kl. 9:00–12:00
10–12 ára: kl. 13:00–16:00


Námskeiðsgjald er 15.400 krónur. Veittur er systkinaafsláttur: fullt gjald er greitt fyrir eitt barn en 50% afsláttur er veittur af námskeiðsgjaldi annarra systkina. Þá eru foreldrar og forráðamenn vinsamlegast beðnir að láta vita ef barn er með sérþarfir sem taka þarf tillit til.

Athugið að fjöldi þátttakenda í sumarnámskeiðunum er takmarkaður.

Skráning er opin í gegnum frístundavefinn Völu. Frekari upplýsingar um sumarnámskeiðin eru veittar í síma 585 5790 eða í gegnum netfangið [email protected].