Vegna gildandi samkomutakmarkana verður hádegistónleikum Hönnu Þóru Guðbrandsdóttur og Antoníu Hevesi streymt í beinni útsendingu á netinu, bæði á Facebook og hér á heimasíðu Hafnarborgar, þar sem við getum því miður ekki tekið á móti áhorfendum í sal Hafnarborgar að þessu sinni.
Útsendingin mun hefjast kl. 12 þriðjudaginn 3. nóvember, samkvæmt venju, og stendur í um hálfa klukkustund en hægt er að horfa á tónleikana í spilaranum hér fyrir neðan. Þá verður upptakan áfram aðgengileg á netinu að tónleikunum loknum. Beina slóð á streymið má einnig finna hér.
Við vonumst svo til þess að geta tekið á móti ykkur á hádegistónleikum í Hafnarborg áður en langt um líður.