Sunnudaginn 17. maí kl. 14, í aðdraganda sýningarloka Heiðvirðra einstaklinga, bjóða listamennirnir Weronika Balcerak og Lukas Bury gestum að hafa bein áhrif á verkið 22,394, tileinkað Félix González-Torres, í anda verka González-Torres. Verk þeirra samanstendur af miklu magni Prince Polo stykkja þar sem sjálft magnið vísar til fjölda Pólverja á Íslandi samkvæmt Hagstofu Íslands þegar verkið var unnið. Þannig kallar verkið fram tengingar milli þessa kunnuglega súkkulaðistykkis og hins pólska samfélags, sem er orðinn stór hluti af íslensku samfélagi, enda þótt staða þess og framlag sé oft smættað niður í einfalda tölfræði.

Við þetta tilefni verður gestum boðið að taka sér stykki úr verkinu. Á pólsku þýðir Smacznego „verði þér að góðu“ og verður hér að boði um þátttöku, samneyti og sameiginlega upplifun. Þá mun skáldið Jakub Stachowiak einnig lesa stuttlega úr væntanlegri bók sinni Meðan borgin blánar: ljóðasöngur um ástarsorg, sem kemur út í þessum mánuði hjá Máli og menningu.
Sýningin hverfist um langvarandi og lítt rædd samskipti milli Póllands og Íslands í gegnum tíðina – sem hófust með viðskiptum löngu áður en Pólverjar urðu stærsti hópur innflytjenda á Íslandi. Þá vinna listamennirnir með miðla eins og útsaum, vídeó og málverk en með því að sameina sögulegar heimildir við hugleiðingar um lífið á líðandi stundu setja þau þessi menningartengsl í nýtt samhengi. Sýningin varpar þannig ljósi á hvernig hversdagslegir hlutir, vinnuafl og efnahagsleg tengsl hafa haft áhrif á Ísland og Pólland í nær heila öld – og dregur upp mynd af sambandi sem hófst löngu fyrir nútímafólksflutninga og mótar bæði löndin enn í dag. Sýningarstjórar eru Aldís Arnardóttir og Hólmar Hólm.
Lukas Bury (f. 1991) og Weronika Balcerak (f. 1996) mynda saman listamannatvíeykið Austur-Íslendinga. Nafnið hefur sögulega tilvísun til Vestur-Íslendinga, sem fluttu á sínum tíma vestur um haf og hófu nýtt líf. Þannig kvikna spurningar um það að koma til nýs lands, setjast að og tilheyra. Þá byggja þau á löngum ferlum þar sem úrvinnslan og sjálft samhengið fléttast saman og persónuleg reynsla mætir sögulegum tilvísunum. Verk þeirra einkennast af ígrunduðu efnisvali og tengingu við stað, þar sem þau beina sjónum að því hvernig merking verður til í gegnum viðveru, endurtekningu og sameiginlegt rými.
Aðgangur ókeypis – verið öll velkomin.
"*" indicates required fields