Sunnudaginn 13. september kl. 11:28 verður Hafnarborg opnuð fyrr en venjulega í tengslum við verk Daníels Ágústs Ágústssonar, 11:28-15:32 _ 13.09.26, sem er hluti af haustsýningu safnsins spássíunni, í sýningarstjórn Katrínar Bjargar Gunnarsdóttur og Úlfs Braga Einarssonar. Þá tekur verkið mið af sólarljósinu sem skín inn um hringlaga gluggann á gafli Hafnarborgar en Daníel hefur sérstaklega rakið feril ljóssins eins og það streymir inn um gluggann á þessum tiltekna degi, 13. september, frá kl. 11:28 til 15:32.

Í verkum sínum vinnur Daníel gjarnan með einkenni hvers sýningarrýmis. Hér beinir hann augum gesta bæði að glugganum og birtunni, þar sem augun leita um rýmið eftir ljósinu og gestir uppgötva eitthvað sem stendur utan við verkið sjálft. Það sem verkið sýnir er þó aðeins ein birtingarmynd þessa síbreytilega fyrirbæris sem færist um rýmið frá degi til dags. Á spássíunni er sjónum þannig beint að rýminu sjálfu og þeim möguleikum sem búa í hinu óséða eða gleymda, í tóminu sem er í raun aldrei tómt.
Daníel Ágúst Ágústsson er myndlistarmaður og fatahönnuður, búsettur í Reykjavík. Í listsköpun sinni fæst hann við yfirgripsmiklar innsetningar og skúlptúra, þar sem efni og aðferðir eru gjarnan í virku samtali við rýmið í kring og beina sjónum að umhverfi verksins. Listamaðurinn verður einnig með viðveru í rýminu og gefst gestum þá færi á að spjalla við listamanninn og upplifa verkið á þeirri stundu sem það vísar til.
Aðgangur ókeypis – verið öll velkomin.
"*" indicates required fields