Hafnarborg merki

Hafnarborg

Tónleikar
13.06.26 - 28.06.26

Sönghátíð í Hafnarborg 2026 – dagskrá

Sönghátíð í Hafnarborg verður haldin í tíunda sinn dagana 13. til 28. júní 2026. Hátíðin er helguð klassískri tónlist, ljóða-, óperu- og kórsöng en markmið hennar er að heiðra klassíska söngtónlist og auka almenna þekkingu á list raddarinnar með tónleikum og námskeiðahaldi.
Á Sönghátíð í Hafnarborg í ár verður boðið upp á átta tónleika með framúrskarandi íslenskum og erlendum söngvurum og hljóðfæraleikurum, auk námskeiða fyrir börn og fullorðna, leika sem lærða. Stofnendur og stjórnendur Sönghátíðar eru Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, mezzósópran, og Francisco Javier Jáuregui, gítarleikari.

Dagskrá

Laugardaginn 13. júní kl. 17
Í kvöldroða
Sally Matthews, sópran
Simon Lepper, píanóleikari

Laugardaginn 20. júní kl. 17
Suor Angelica eftir G. Puccini
Gjallandi
Ólína Ákadóttir, píanóleikari

Sunnudaginn 21. júní kl. 17
Vegurinn endalausi
Stuart Skelton, tenór
Liam Kaplan, píanóleikari

Þriðjudaginn 23. júní kl. 20
Fragments
Olga Vocal Ensemble

Fimmtudaginn 25. júní kl. 20
Master class tónleikar
Nemendur Kristins Sigmundssonar á master class námskeiði syngja sönglög og aríur
Helga Bryndís Magnúsdóttir, píanóleikari

Föstudaginn 26. júní kl. 17
Fjölskyldutónleikar (ókeypis aðgangur)
Solveig Óskarsdóttir, söngkona
Sævar Helgi Jóhannsson, píanóleikari

Laugardaginn 27. júní kl. 17
Hinn eilífi söngur
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, mezzósópran
Halldóra Ósk Helgadóttir, sópran
Þóra Kristín Gunnarsdóttir, píanóleikari
Bjargey Birgisdóttir, fiðluleikari
Sólveig Steinþórsdóttir, fiðluleikari
Fidel Atli Quintero Gasparsson, víóluleikari
Júlía Mogensen, sellóleikari
Francisco Javier Jáuregui, gítarleikari

Sunnudaginn 28. júní kl. 17
Óperugala
Harpa Ósk Björnsdóttir, sópran
Sigríður Ósk Kristjánsdóttir, mezzósópran
Elmar Gilbertsson, tenór
Andri Björn Róbertsson, bassabaritón
Matthildur Anna Gísladóttir, píanóleikari

Nánari upplýsingar um Sönghátíð í Hafnarborg, dagskrá, námskeið og flytjendur má finna á heimasíðu hátíðarinnar, www.songhatid.is. Þá fer miðasala fram í gegnum www.tix.is. Hátíðin nýtur stuðnings Hafnarfjarðarbæjar og Tónlistarsjóðs.

Skráðu þig á póstlistann okkar

Fylgstu með því nýjasta sem er fram undan á safninu.

"*" indicates required fields

Bóka heimsókn