Hafnarborg merki

Hafnarborg

Tónleikar
18.09.26 | 18:00 - 19:00

Síðdegistónar – Tríó Rebekku Blöndal

Föstudaginn 18. september kl. 18 mun tríó Rebekku Blöndal koma fram á fyrstu Síðdegistónum í Hafnarborg þetta haustið. Með Rebekku leika þeir Andrés Þór á gítar og Þorgrímur Jónsson á kontrabassa.

Á efnisskrá tónleikanna verður fjölbreytt úrval laga eftir Rebekku, bæði eldri verk og nýrra efni. Einnig verða flutt lög af nýútkominni plötu hennar, Kannski, sem hefur hlotið góðar viðtökur og góða dóma gagnrýnenda. Þá mætti lýsa tónlistinni á plötunni lýsa sem persónulegri og hlýlegri þar sem íslenskir textar, melódísk lagasmíð og áhrif úr djassi og samtímapoppi mætast.

Rebekka Blöndal hefur á undanförnum árum vakið athygli fyrir persónulegan og næman flutning sinn og hér gefst gestum tækifæri til að kynnast tónlist hennar í náinni og lifandi umgjörð.

Tónleikarnir standa í um klukkustund og er aðgangur ókeypis.

Síðdegistónar í Hafnarborg eru styrktir af Hafnarfjarðarbæ.

Skráðu þig á póstlistann okkar

Fylgstu með því nýjasta sem er fram undan á safninu.

"*" indicates required fields

Bóka heimsókn