Hafnarborg merki

Hafnarborg

09.09.22

Síðdegistónar – Tríó Dan Cassidy og Andrea Gylfadóttir

Föstudaginn 9. september kl. 18 hefja Síðdegistónar í Hafnarborg dagskrá sína að nýju en þetta er þriðji veturinn sem tónleikaröðin er haldin í Hafnarborg. Á fyrstu tónleikum vetrarins kemur fram tríó fiðluleikarans Dan Cassidy, ásamt Andrési Þór á gítar og Jóni Rafnssyni á kontrabassa. Þá verður söngkonan Andrea Gylfadóttir sérstakur gestur á tónleikunum. Munu þau flytja þekkt djass- og blúslög ásamt ýmsum gullmolum úr heimi dægurtónlistar í anda fiðluleikaranna Stéphane Grappelli, Didier Lockwood og Svend Asmussen. Tónleikarnir standa yfir í um klukkustund og er aðgangur ókeypis.

Tónleikaröðin er styrkt af Hafnarfjarðarbæ og Tónlistarsjóði.

Höfundur mynda: Rúnar Gunnarsson.

Skráðu þig á póstlistann okkar

Fylgstu með því nýjasta sem er fram undan á safninu.

"*" indicates required fields

Bóka heimsókn