Hafnarborg merki

Hafnarborg

23.07.15

Menningargöngur í Hafnarfirði – Víðistaðatún

Í sumar er boðið uppá kvöldgöngur í Hafnarfirði með leiðsögn alla fimmtudaga kl. 20. Miðað er við að þær taki um klukkustund og séu við allra hæfi. Þátttaka er ókeypis.

Fimmtudagskvöldið 23. júlí kl. 20 verður gengið um Víðistaðatún í fylgd Þráins Haukssonar landslagsartkitekts. Hugað verður bæði að sögu, skipulagi og listaverkunum á túninu.

Gengið verður frá Skátaheimilinu við Hjallabraut.

 

Sumargöngurnar eru samstarf Hafnarborgar, Byggðarsafns, Bókasafns og skrifstofu menningarmála í Hafnarfirði. Göngurnar njóta stuðnings frá Hafnarfjarðarhöfn.

Skráðu þig á póstlistann okkar

Fylgstu með því nýjasta sem er fram undan á safninu.

"*" indicates required fields

Bóka heimsókn