Hafnarborg merki

Hafnarborg

Menningarganga
03.06.26 | 20:00

Menningarganga – Tónlistin og bæjarlífið

Jónatan Garðarsson leiðir fyrstu menningargöngu sumarsins, um miðbæ Hafnarfjarðar. Við rifjum upp sterka tengingu tónlistar og bæjarlífsins. Fjallað verður um Friðrik Bjarnason, Sönghátíð í Hafnarborg, kirkjutónlist, Vinaminni, unglingaböll, Skiphól, Skútuna, Hjarta Hafnarfjarðar og margt fleira.

Gengið verður frá Hafnarborg.

Hafnarfjarðarbær býður upp á menningar- og heilsugöngur öll miðvikudagskvöld í sumar. Flestar göngurnar taka um klukkustund og hefjast kl. 20, nema annað sé tekið fram. Menningar- og heilsugöngur eru samstarfsverkefni Hafnarborgar, Byggðasafns Hafnarfjarðar, Bókasafns Hafnarfjarðar og Heilsubæjarins Hafnarfjarðar. Þátttaka er ókeypis og öll velkomin.

Skráðu þig á póstlistann okkar

Fylgstu með því nýjasta sem er fram undan á safninu.

"*" indicates required fields

Bóka heimsókn