Þriðjudaginn 6. október kl. 12 bjóðum við ykkur hjartanlega velkomin á næstu hádegistónleika í Hafnarborg en þá verður söngkonan Martyna Gesella gestur Antoníu Hevesi, píanóleikara og listræns stjórnanda tónleikaraðarinnar.

Martyna Gesella, sópran, kemur frá Póllandi og stundaði nám við Tónlistarháskólann í Gdańsk og Conservatorio di Musica Gioachino Rossini í Pesaro á Ítalíu. Þá hefur hún lagt stund á söng og leiklist, auk einsöngsnáms. Martyna hefur komið fram á óperusviðum í Póllandi, Ítalíu og Þýskalandi og flutt verk eftir tónskáld á borð við Verdi, Rossini, Puccini, Bellini og Mozart.
Meðal hlutverka sem hún hefur tekið að sér má nefna Violettu í La traviata, Fiordiligi í Così fan tutte og titilhlutverkið í Tosca. Hún hefur hlotið verðlaun í alþjóðlegu söngkeppninni Golden Voices í Varsjá og hefur einnig sungið með José Carreras. Martyna kemur nú fram á Íslandi, þar sem hún hefur meðal annars sungið hlutverk Laurettu í Gianni Schicchi með óperufélaginu Norðurópi fyrr á árinu. Þá starfar hún einnig sem söngkennari.
Antonía Hevesi, píanóleikari, hefur frá upphafi verið listrænn stjórnandi hádegistónleika í Hafnarborg, sem hafa verið fastur liður í dagskrá safnsins síðan 2003. Þar hefur Antonía fengið til liðs með sér marga af fremstu söngvurum landsins en markmiðið með tónleikunum að veita gestum tækifæri til að njóta lifandi tónlistarflutnings í góðu tómi. Þá fara hádegistónleikarnir að jafnaði fram fyrsta þriðjudag hvers mánaðar yfir vetrartímann.
Tónleikarnir hefjast kl. 12 og standa yfir í um hálfa klukkustund. Húsið opnar kl. 11:30 og tónleikarnir eru öllum opnir á meðan húsrúm leyfir. Aðgangur ókeypis.
"*" indicates required fields