Hafnarborg merki

Hafnarborg

Tónleikar
07.04.26 | 12:00 - 12:30

Hádegistónleikar – Margrét Hrafnsdóttir

Þriðjudaginn 7. apríl kl. 12 bjóðum við ykkur velkomin á næstu hádegistónleika í Hafnarborg en þá verður Margrét Hrafnsdóttir gestur Antoníu Hevesi, píanóleikara og listræns stjórnanda tónleikaraðarinnar. Þá munu þær kynna Vínartónlist eða óperettur eftir tónskáldin Sieczyński, Stolz, Strauss og Lehár en yfirskrift tónleikanna að þessu sinni er „Dillandi“.

Margrét Hrafnsdóttir, sópran, tekur virkan þátt í tónleikahaldi hér á landi og hefur meðal annars frumflutt verk eftir þau Ingibjörgu Azima, Oliver Kentish og Steingrím Þórhallsson. Hún hefur hlotið styrk hjá Wagnerfélaginu í Stuttgart og Hlaðvarpanum, Tónlistarsjóði og einnig hlotið Listamannalaun. Margrét hefur haldið einsöngstónleika í Þýskalandi, Sviss, Ítalíu, Danmörku og Svíþjóð með efnisskrám sem spanna allt frá sjaldheyrðum verkum að þjóðlögum og margbreytilegri og dramatískri leikhús- og óperutónlist.

Árið 2007 gaf hún ásamt Ólöfu Sigursveinsdóttur, sellóleikara, út geisladiskinn Hjartahljóð, íslensk þjóðlög. 2015 kom út diskurinn Vorljóð á Ýli með lögum eftir Ingibjörgu Azima í útsetningum fyrir óhefðbundna kammersveit með fagotti, harmonikku, klarinetti, kontrabassa og sellói. Í október 2025 kom út diskurinn LOGN einnig með tónlist eftir Ingibjörgu. Margrét hefur einnig sungið hlutverk í íslenskum óperum, meðal annars hlutverk Freyju í Þrymskviðu eftir Jón Ásgeirsson og Nornina í Ár og öld, óperu eftir Þórunni Guðmundsdóttur. 19. október sl. frumflutti hún á Óperudögum ásamt Hrönn Þráinsdóttur, píanóleikara,  Didda Guðnasyni, slagverksleikara, og Justin Mange, hornleikara, óperuna/söguljóðið „Urta“ eftir Ingibjörgu Azima við texta Gerðar Kristnýjar.

Antonía Hevesi, píanóleikari, hefur frá upphafi verið listrænn stjórnandi hádegistónleika í Hafnarborg, sem hafa verið fastur liður í dagskrá safnsins síðan 2003. Þar hefur Antonía fengið til liðs með sér marga af fremstu söngvurum landsins en markmiðið með tónleikunum að veita gestum tækifæri til að njóta lifandi tónlistarflutnings í góðu tómi. Þá fara hádegistónleikarnir að jafnaði fram fyrsta þriðjudag hvers mánaðar yfir vetrartímann.

Tónleikarnir hefjast kl. 12 og standa yfir í um hálfa klukkustund. Húsið opnar kl. 11:30 og tónleikarnir eru öllum opnir á meðan húsrúm leyfir. Aðgangur ókeypis.

Skráðu þig á póstlistann okkar

Fylgstu með því nýjasta sem er fram undan á safninu.

"*" indicates required fields

Bóka heimsókn