Hafnarborg merki

Hafnarborg

Tónleikar
01.09.26 | 12:00 - 12:30

Hádegistónleikar – Hildigunnur Einarsdóttir

Þriðjudaginn 1. september kl. 12 bjóðum við ykkur velkomin á fyrstu hádegistónleika nýs misseris í Hafnarborg en þá verður Hildigunnur Einarsdóttir gestur Antoníu Hevesi, píanóleikara og listræns stjórnanda tónleikaraðarinnar.

Hildigunnur Einarsdóttir, mezzósópran, lauk burtfararprófi frá Söngskólanum í Reykjavík og stundaði framhaldsnám í Þýskalandi og Hollandi. Hildigunnur hefur einnig lokið BA-prófi í skapandi tónlistarmiðlun frá Listaháskóla Íslands. Hún hefur verið áberandi á kirkjutónlistarsenunni og hefur meðal annars sungið einsöngshlutverk í Messías og Judas Maccabeus eftir Händel, auk Mattheusarpassíu, Jóhannesarpassíu og Jólaóratoríunnar eftir Bach og Guðbrandsmessu eftir Hildigunni Rúnarsdóttur. Þá hefur hún sungið einsöng með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, Barokksveitinni Brák, Caput og Kammersveit Reykjavíkur og frumflutt fjölda verka, svo sem eftir Hreiðar Inga Þorsteinsson, Ingibjörgu Ýri Skarphéðinsdóttur, John Speight og Kolbein Bjarnason.

Nýlega söng Hildigunnur dúett með sópransöngkonunni og hljómsveitarstjóranum Barböru Hannigan á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands og tók einnig þátt í verkinu Ritual í Hörpu ásamt hinum heimsfræga sellóleikara Yo-Yo Ma. Hún hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin 2023 fyrir söng ársins í flokki sígildrar og samtímatónlistar. Hildigunnur var svo á dögunum fastráðin við nýstofnaða Óperu þjóðarinnar og mun fara með hlutverk Mistress Quickly í uppsetningu Óperunnar á Falstaff eftir Verdi vorið 2027.

Antonía Hevesi, píanóleikari, hefur frá upphafi verið listrænn stjórnandi hádegistónleika í Hafnarborg, sem hafa verið fastur liður í dagskrá safnsins síðan 2003. Þar hefur Antonía fengið til liðs með sér marga af fremstu söngvurum landsins en markmiðið með tónleikunum að veita gestum tækifæri til að njóta lifandi tónlistarflutnings í góðu tómi. Þá fara hádegistónleikarnir að jafnaði fram fyrsta þriðjudag hvers mánaðar yfir vetrartímann.

Tónleikarnir hefjast kl. 12 og standa yfir í um hálfa klukkustund. Húsið opnar kl. 11:30 og tónleikarnir eru öllum opnir á meðan húsrúm leyfir. Aðgangur ókeypis.

Skráðu þig á póstlistann okkar

Fylgstu með því nýjasta sem er fram undan á safninu.

"*" indicates required fields

Bóka heimsókn