Hafnarborg merki

Hafnarborg

Tónleikar
05.05.26 | 12:00 - 12:30

Hádegistónleikar – Elín Ósk Óskarsdóttir

Þriðjudaginn 5. maí kl. 12 bjóðum við ykkur velkomin á síðustu hádegistónleika  þessa vormisseris í Hafnarborg en þá verður söngkonan Elín Ósk Óskarsdóttir gestur Antoníu Hevesi, píanóleikara og listræns stjórnanda tónleikaraðarinnar.

Elín Ósk Óskarsdóttir hóf tónlistarnám sitt við Tónlistarskóla Rangæinga á píanó 11 ára gömul og söng í Tónleitarskólakór Rangæinga. Árin 1979-1984 stundaði hún svo nám við Söngskólann í Reykjavík og lauk þaðan LRSM (einsöngvaraprófi). Aðalkennari hennar var hin ástsæla söngkona Þuríður Pálsdóttir og undirleikari var Jórunn Viðar, tónskáld. Elín Ósk stundaði framhaldsnám á Ítalíu 1984-1986 hjá Pier Miranda Ferraro, tenór og prófessor hjá Verdi-akademíunni í Mílanó. Eftir tveggja ára nám á Ítalíu var Elín kölluð heim til Íslands til að syngja titilhlutverkið í óperunni Tosca í uppfærslu Þjóðleikhússins árið 1986 aðeins 25 ára og var það jafnframt hennar fyrsta hlutverk á sviði.

Antonía Hevesi, píanóleikari, hefur frá upphafi verið listrænn stjórnandi hádegistónleika í Hafnarborg, sem hafa verið fastur liður í dagskrá safnsins síðan 2003. Þar hefur Antonía fengið til liðs með sér marga af fremstu söngvurum landsins en markmiðið með tónleikunum að veita gestum tækifæri til að njóta lifandi tónlistarflutnings í góðu tómi. Þá fara hádegistónleikarnir að jafnaði fram fyrsta þriðjudag hvers mánaðar yfir vetrartímann.

Tónleikarnir hefjast kl. 12 og standa yfir í um hálfa klukkustund. Húsið opnar kl. 11:30 og tónleikarnir eru öllum opnir á meðan húsrúm leyfir. Aðgangur ókeypis.

Skráðu þig á póstlistann okkar

Fylgstu með því nýjasta sem er fram undan á safninu.

"*" indicates required fields

Bóka heimsókn