Hafnarborg merki

Hafnarborg

Útgáfuhóf
19.09.26 | 15:00 - 15:00

Bjarmaband – útgáfuhóf

Laugardaginn 19. september kl. 15-17 fögnum við útgáfu bókarinnar Bjarmaband: Frosti Fjalar í Hafnarborg. Bókin er gefin út í tengslum við samnefnda sýningu og birtir úrval verka Frosta Fjalars ásamt ljósmyndum og textum sem varpa ljósi á myndlist hans og feril. Þá gefst gestum tækifæri til að skoða sýninguna og kynna sér bókina sérstaklega.

Í verkum Frosta mætast geómetrísk form, lóðréttar og láréttar línur, litafletir og áferð sem byggja upp sérstæðan myndheim þessa áhugaverða listamanns. Verkin bera vitni um rannsókn á formi, lit og efni sem einkenndi myndlist hans um áratugaskeið.

Útgefendur bókarinnar eru Ásdís Spanó og Kristín Ásta Kristinsdóttir. Textar eru eftir Ásdísi Spanó, Kristínu Ástu Kristinsdóttur og Aðalstein Ingólfsson og ljósmyndir eftir Kristínu Ástu Kristinsdóttur. Hönnun og umbrot bókarinnar annaðist Helga Gerður Magnúsdóttir. Útgáfa bókarinnar er styrkt af Myndlistarsjóði og Hafnarborg.

Bókin verður seld á sérstöku kynningarverði í tilefni dagsins.

Aðgangur ókeypis – verið öll velkomin.

Skráðu þig á póstlistann okkar

Fylgstu með því nýjasta sem er fram undan á safninu.

"*" indicates required fields

Bóka heimsókn