Hafnarborg merki

Hafnarborg

Á mínu máli Smiðja
17.06.26 | 12:00 - 14:00

Á mínu máli – fjöltyngd fánasmiðja

[Ver español abajo.]

Á ‏þjóðhátíðardaginn, 17. júní kl. 12-14, bjóða Hafnarborg og GETA öll velkomin í safnið að búa til sína eigin ‏þjóðhátíðarfána. Á staðnum verður efniviður til að búa til sinn eigin íslenska ‏fána úr hvítum, bláum og rauðum pappír en einnig verða í boði litir fyrir þau sem vilja gefa ímyndunaraflinu lausan tauminn og hanna sína eigin fána eða jafnvel búa til aðra ‏þjóðfána. Tungumál smiðjunnar eru íslenska, enska og spænska.

Umsjón með smiðjunni hefur mexíkóski myndlistarmaðurinn Hugo Llanes sem hefur verið búsettur á Íslandi undanfarin átta ár. Hugo er með MA-gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands en stundar um ‏þessar mundir nám í íslensku sem annað mál við Háskóla Íslands.

Á mínu máli er viðburðaröð sem miðar að því að auka aðgengi fólks með margs konar bakgrunn að Hafnarborg með því að bjóða gesti velkomna á ólíkum tungumálum. Viðburðurinn er samstarf Hafnarborgar og samtakanna GETU sem með fjölbreyttum viðburðum og félagsstarfi leitast við að stuðla að inngildingu og jákvæðri fjölmenningu. Verkefnið er styrkt af safnasjóði.

Aðgangur ókeypis – verið öll velkomin.

Sýningar safnsins verða einnig opnar eins og venjulega, kl. 12-17: Stór heimur eftir Helga Þorgils Friðjónsson og May Show Signs of Minor Defects eftir Svein Fannar Jóhannsson. Að auki mun Annríki svo halda sérstaka þjóðbúningasýningu í Apótekinu á jarðhæð safnsins, líkt og hefð hefur skapast fyrir í safninu undanfarin ár. Í tengslum við sýningu Annríkis bendum við jafnframt á að þjóðbúningamyndataka fer fram við Hafnarborg kl. 15.

 

En mi idioma – taller multilinguë de banderas

Con motivo del Día Nacional de Islandia, el 17 de junio de 12:00 a 14:00 h, Hafnarborg y GETA les invitan al museo a crear su propia bandera conmemorativa. Se proporcionarán materiales para confeccionar una bandera islandesa con papel blanco, azul y rojo. También habrá colores disponibles para quienes deseen dar rienda suelta a su imaginación, diseñar una bandera personal o incluso crear una bandera de otro país. El taller se llevará a cabo en islandés, inglés y español.

La actividad estará a cargo del artista mexicano Hugo Llanes, quien reside en Islandia desde hace ocho años. Hugo tiene una maestría en Bellas Artes por la Universidad de las Artes de Islandia y actualmente estudia islandés como segundo idioma en la Universidad de Islandia.

En mi idioma es una serie de eventos que busca ampliar el acceso a Hafnarborg para personas de diversos orígenes, acogiendo a los visitantes en distintos idiomas. El evento es una colaboración entre Hafnarborg y GETA, una organización que promueve la inclusión y la multiculturalidad positiva a través de diversas actividades sociales y culturales. El programa cuenta con el apoyo del Fondo de Museos.

La entrada es gratuita – todos son bienvenidos.

Las exposiciones del museo estarán abiertas como de costumbre, de 12:00 a 17:00 h: Great World, de Helgi Þorgils Friðjónsson, y May Show Signs of Minor Defects, de Sveinn Fannar Jóhannsson. Además, Annríki albergará una exposición especial de trajes típicos en la planta baja del museo, una tradición que se ha consolidado en la programación de Hafnarborg en los últimos años. Como parte de los eventos del día, a las 15:00 h se tomará una fotografía grupal de personas vestidas con trajes típicos en el exterior de Hafnarborg.

Skráðu þig á póstlistann okkar

Fylgstu með því nýjasta sem er fram undan á safninu.

"*" indicates required fields

Bóka heimsókn