
Í sumar býður Hafnarborg börnum á aldrinum 6–12 ára að taka þátt í skapandi myndlistarnámskeiðum, þar sem ímyndunaraflið fær að njóta sín. Þátttakendur fá tækifæri til að kanna umhverfið á listrænan hátt, skoða sýningar safnsins og vinna að fjölbreyttum verkefnum.
Áhersla er lögð á leik og sköpun þar sem grunnatriði myndlistar eru kynnt í gegnum leiðangra, athugun og tilraunir. Unnið verður með ýmsa miðla – teikningu, málun og mótun – með það að markmiði að styrkja sjónræna skynjun, efla skapandi hugsun og styðja við persónulega tjáningu hvers og eins.
Boðið er upp á tvö fimm daga námskeið og eitt fjögurra daga námskeið fyrir tvö aldursbil: 6–9 ára og 10–12 ára. Námskeiðið sem hefst 22. júní verður svo með sérstöku tónlistarívafi í tengslum við Sönghátíð í Hafnarborg og lýkur með þátttöku barnanna í fjölskyldutónleikum föstudaginn 26. júní kl. 17.
Boðið verður upp á eftirfarandi sumarnámskeið:
15. til 19. júní (4 dagar), myndlist
6–9 ára: kl. 9:00–12:00
10–12 ára: kl. 13:00–16:00
22. til 26. júní (5 dagar), myndlist og tónlist
6–9 ára: kl. 9:00–12:00
10–12 ára: kl. 13:00–16:00
10. til 14. ágúst (5 dagar), myndlist
6–9 ára: kl. 9:00–12:00
10–12 ára: kl. 13:00–16:00
Námskeiðsgjald fyrir 5 daga er 18.702 krónur og gjald fyrir 4 daga er 14.962. Foreldrar og forsjáraðilar eru vinsamlegast beðin að láta vita ef barn er með sérþarfir sem taka þarf tillit til.
Athugið að fjöldi þátttakenda í sumarnámskeiðunum er takmarkaður.
Opnað verður fyrir skráningu í gegnum frístundavefinn Völu í lok aprílmánaðar. Frekari upplýsingar um námskeiðin eru veittar í síma 585 5790 eða í gegnum netfangið [email protected].
"*" indicates required fields