Hafnarborg merki

Hafnarborg

Uncategorized @is

Laust starf – móttöku- og þjónustufulltrúi

Laus er til umsóknar staða móttöku- og þjónustufulltrúa í Hafnarborg.

Helstu verkefni:

  • Móttaka og almenn upplýsingagjöf til gesta um sýningar og viðburði safnsins auk símavörslu
  • Gæsla í sýningarsölum og eftirlit með öryggi listmuna og gesta
  • Afgreiðsla, uppgjör og umsjón með samantekt tölulegra upplýsinga
  • Eftirlit með daglegri umgengni, tæknibúnaði sýninga og viðhald snyrtilegs umhverfis í safnverslun og sýningarsölum
  • Umsjón með safnverslun og gestavinnustofu
  • Aðstoð við undirbúning, uppsetningu og frágang vegna ýmissa viðburða í safninu
  • Önnur verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni og samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Stúdentspróf
  • Reynsla af sambærilegu starfi æskileg
  • Rík þjónustulund og góð samskiptahæfni
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Áhugi á starfsemi safnsins
  • Almenn tölvuþekking
  • Líkamleg geta til að sinna starfi

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar en um 60% starf er að ræða. Vinnutími er að jafnaði virka daga frá kl. 11:30–17:30, með möguleika á aukavinnu.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Aldís Arnardóttir, forstöðumaður Hafnarborgar, í síma 585 5791 eða í gegnum netfangið [email protected].

Umsóknarfrestur er til og með 3. júlí næstkomandi.

Hægt er að sækja um starfið hér á vef Hafnarfjarðarbæjar.

Skráðu þig á póstlistann okkar

Fylgstu með því nýjasta sem er fram undan á safninu.

"*" indicates required fields

Bóka heimsókn