Söngfuglar – Listamanns- og sýningarstjóraspjall

Katrín Elvarsdóttir og Daría Sól Andrews

Laugardaginn 27. nóvember klukkan 14 munu Katrín Elvarsdóttir, myndlistarkona, og Daría Sól Andrews, sýningarstjóri, taka á móti gestum og segja frá sýningunni Söngfuglum, sem stendur nú yfir í Sverrissal Hafnarborgar.

Á sýningunni má sjá ný verk eftir listakonuna frá því að hún heimsótti eyna Kúbu. Þar gekk hún um götur Havana með myndavélina að vopni en hún tók sérstaklega eftir því að margir eyjarbúar halda söngfugla í búrum á heimilum sínum. Vekur þessi siður jafnvel upp spurningar um frelsi og frelsisskerðingu en saga eyjarinnar hefur til langs tíma einkennst af höftum og einangrun. Jafnframt má spyrja sig hvort Kúbverjar finni til samkenndar með fuglunum, sem eru ekki frjálsir ferða sinna, frekar en eyjarbúar. Þá ættum við flest að eiga létt með að samsama okkur slíkri innilokunarkennd í dag, enda veldur núverandi ástand heimsins því að mörgum okkar finnst eins og við séum föst í búri, hvar sem við erum stödd á hnettinum.

Katrín Elvarsdóttir lauk BFA námi frá Art Institute í Boston árið 1993. Hún hefur haldið fjölda einkasýninga hérlendis og erlendis, svo sem Leitina að sannleikanum í BERG Contemporary árið 2018, Double Happiness í Gerðarsafni árið 2016, Vanished Summer í Deborah Berke, New York, árið 2014 og Hvergiland í Listasafni Reykjavíkur árið 2010. Þá hafa verk Katrínar verið sýnd á samsýningum víða, þar á meðal á Þöglu vori í Hafnarborg árið 2020. Fjórar bækur hafa áður verið gefnar út með ljósmyndum Katrínar og verður bókin Songbirds, sem kemur út samhliða sýningu hennar í Hafnarborg, sú fimmta. Katrín hefur verið tilnefnd til ýmissa verðlauna eins og EIKON Award árið 2017, Deutsche Börse Photographic Prize árið 2009 og heiðursverðlauna Myndstefs árið 2007.