Hljóðön – BLÓÐSÓL III

Sunnudaginn 3. mars kl. 16 mun BLÓÐSÓL III, samstarfsverkefni Ástu Fanneyjar Sigurðardóttur og Haralds Jónssonar, birtast í Hafnarborg, í tengslum við Hljóðön – sýningu tónlistar. Að þessu sinni teygir hún geisla sína og smeygir í samkomu. Viðburðurinn lýsir upp síkvikar væntingar mannsins þar sem þátttakendur eru í senn áhorfendur, viðfangsefni og hvorugt. Gestum er boðið á blint stefnumót við sól, að hlusta á stað og vökva með augunum.

Ásta Fanney Sigurðardóttir lauk námi við Listaháskóla Íslands árið 2012. Gjörningar, textaverk, tónlist, skúlptúrar, hljóðverk, teikningar, kvikmyndun og ýmis konar viðburðir eru meðal þeirra miðla sem hún fæst við. Viðfangsefni hennar hverfast oft um framsetningu, hlutverk og hegðun fólks og hvernig orð og umhverfi hafa áhrif. Hún vinnur með ýmis form þar sem landamæri hluta og greina eru máð út og blandar mikið saman ólíkum aðferðum við útfærslur á hugmyndum sínum hvort sem það séu vísindaskáldsögur, sápuóperur, óperur, raulkórverk, spæjaraþættir eða hávaðaljóð.

Haraldur Jónsson stundaði nám við MHÍ, Listaakademíuna í Düsseldorf og Institut des hautes études en art plastiques í París. Skúlptúrar, hljóðverk, ljósmyndir, teikningar og gjörningar eru meðal þeirra miðla sem hann notar í list sinni. Hann hefur áhuga á næfurþunnu bilinu milli einkalega og sameiginlega rýmisins sem hann nálgast með ýmsum aðferðum og meðulum. Skúlptúrar sem framkalla þögn, teikningar sem kortlagning tilfinninga, innsetningar með tilbúnum hlutum sem öðlast aðra virkni í meðförum hans, listi af tilfinningum sem veggfóður þar sem mörk þess innra og ytra fara á flot. Hann afhjúpar gjarnan það sem er hulið og gerir sýnilegt það sem undir öðrum kringumstæðum hefur ekkert áþreifanlegt form. Hvert verk krefst annarrar nálgunar og miðils en höfundareinkenni hvers og eins leyna sér ekki við nánari kynni.

Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.