Listráð Hafnarborgar hefur valið sýninguna Allt á sama tíma sem haustsýningu ársins 2019, í sýningarstjórn Andreu Arnarsdóttur og Starkaðar Sigurðarsonar. Hugmyndin með sýningunni er að kanna hvernig listamenn takast á við það frelsi sem finnst í myndlist í dag. Hvernig hægt er að búa til merkingu úr list sem getur verið hvað sem er, málverk, barnaleikfang, pappamassi, hreyfing, hugmynd, ópera, gifs. Sýnd verða verk í ólíkum miðlum, frá olíumálverki til gjörninga, og gerð tilraun til að sameina þær dreifðu hugmyndir sem finnast í myndlist samtímans.
Sýningin reynir ekki að búa til sneiðmynd eða yfirlit yfir það hvernig list er í dag, heldur verður kannað hvernig listamennirnir, sem standa frammi fyrir þessu frelsi, móta merkingu úr því. Hvernig list getur tekið á sig hvaða form sem er en talar alltaf sama tungumálið. Hvernig olíumálverk uppi á vegg í heimahúsi er sama listin, hluti af sömu listasögunni, og sveppir sem hægt er að láta vaxa í björtu, hvítu sýningarrými. Hvernig list – og listasagan – er samþjappað fyrirbæri þar sem allt er til á sama tíma.
Andrea Arnarsdóttir lærði hagnýta menningarmiðlun í Háskóla Íslands og hlaut MA gráðu frá skólanum árið 2018. Lokaverkefni hennar, sýningin Ofgnótt í Háskóla Íslands, vakti tölverða athygli. Eftir útskrift stundaði Andrea starfsnám við listasafnið Artipelag í Stokkhólmi. Þar fékk hún innsýn í safnastarf og störf sýningarstjóra auk þess sem hún vann náið með fræðslustjóra stofnunarinnar.
Starkaður Sigurðarson hefur bakgrunn bæði í myndlist og skrifum en eftir útskrift úr LHÍ kláraði hann MFA gráðu í ritlist frá Goddard College vorið 2018. Hann hefur sýnt víðs vegar um Ísland, seinast í sumarsýningu Nýlistarsafnins, Djúpþrýstingi árið 2018, en hefur einnig skrifað myndlistarumfjöllun fyrir Víðsjá, fjölda texta fyrir listamenn og söfn, auk þess að vera ritstjóri myndlistarritsins Stara.
Á hverju ári kallar Hafnarborg eftir tillögum að haustsýningu safnsins með það að markmiði að velja til samstarfs sýningarstjóra, sem leggja fram áhugaverða tillögu að sýningu, en jafnframt að kalla til leiks nýtt fólk. Þannig er sérstaklega hugað að því að veita tækifæri sýningarstjórum með stuttan feril að baki. Það er Listráð Hafnarborgar ásamt forstöðumanni sem fer yfir umsóknir og velur vinningstillöguna ár hvert.
Með haustsýningaröðinni vill Hafnarborg skapa farveg fyrir áhugaverðar hugmyndir, með það að sjónarmiði að safnið sé vettvangur þar sem myndlist fái að njóta sín, mótuð af fjölbreyttum viðhorfum og viðfangsefnum. Sýningarnar og málþing sem skipulögð hafa verið samhliða þeim hafa skapað markverðan vettvang umræðna og þróunar í Hafnarborg.
Listi yfir þátttakendur sýningarinnar verður birtur síðar.