Listamannsspjall – Marta María Jónsdóttir

Sunnudaginn 27. september kl. 15 mun listakonan Marta María Jónsdóttir fjalla um verk sín á sýningunni Heimurinn án okkar. Sýningin er haustsýning Hafnarborgar.

Marta María Jónsdóttir (1974) lauk námi frá Myndlista- og handíðaskóla  Íslands árið 1998 og MFA-námi frá Goldsmiths College í London árið 2000. Hún stundaði einnig nám í teikningu og hreyfimyndagerð við London Animation Studio, í Central Saint Martins College of Art and Design og lauk Postgraduate Diploma í Character Animation árið 2004.

 

Á sýningunni Heimurinn án okkar eru leiddir saman íslenskir listamenn sem vinna með hugmyndir um alheiminn í verkum sínum og  varpa ljósi á ákveðna þætti hans hvort sem um er að ræða hið nálæga eða hið fjarlæga, micro eða macro. Þannig eru hinar ýmsu víddir alheimsins afhjúpaðar um leið og leitað er samfellu og heildar.

Listamennirnir sem eiga verk á sýningunni tilheyra ólíkum kynslóðum og eru verkin unnin í ýmsa miðla. Ásamt Mörtu Maríu (1974) eru það: Björg Þorsteinsdóttir (1940), Brynhildur Þorgeirsdóttir (1955), Finnur Jónsson (1892-1993), Gerður Helgadóttir (1928-1975),  Ragnar Már Nikulásson (1985), Steina (1940) og Vilhjálmur Þorberg Bergsson (1937).

Nánar um sýninguna hér.

Sýningarstjórar sýningarinnar eru Aðalheiður Valgeirsdóttir og Aldís Arnardóttir en sýningartillaga þeirra varð fyrir valinu þegar kallað var eftir tillögum að haustsýningu Hafnarborgar 2015.