Sunnudaginn 22. mars kl. 14 munu myndlistarmennirnir Weronika Balcerak og Lukas Bury taka á móti gestum og segja frá verkum sínum á sýningunni Heiðvirðum einstaklingum, ásamt Hólmari Hólm, öðrum sýningarstjóra.

Sýningin hverfist um langvarandi og lítt rædd samskipti milli Póllands og Íslands í gegnum tíðina – sem hófust með viðskiptum löngu áður en Pólverjar urðu stærsti hópur innflytjenda á Íslandi. Þá vinna listamennirnir með miðla eins og útsaum, vídeó og málverk en með því að sameina sögulegar heimildir við hugleiðingar um lífið á líðandi stundu setja þau þessi menningartengsl í nýtt samhengi. Sýningin varpar þannig ljósi á hvernig hversdagslegir hlutir, vinnuafl og efnahagsleg tengsl hafa haft áhrif á Ísland og Pólland í nær heila öld – og dregur upp mynd af sambandi sem hófst löngu fyrir nútímafólksflutninga og mótar bæði löndin enn í dag.
Lukas Bury (f. 1991) og Weronika Balcerak (f. 1996) mynda saman listamannatvíeykið Austur-Íslendinga. Nafnið hefur sögulega tilvísun til Vestur-Íslendinga, sem fluttu á sínum tíma vestur um haf og hófu nýtt líf. Þannig kvikna spurningar um það að koma til nýs lands, setjast að og tilheyra. Þá byggja þau á löngum ferlum þar sem úrvinnslan og sjálft samhengið fléttast saman og persónuleg reynsla mætir sögulegum tilvísunum. Verk þeirra einkennast af ígrunduðu efnisvali og tengingu við stað, þar sem þau beina sjónum að því hvernig merking verður til í gegnum viðveru, endurtekningu og sameiginlegt rými.
Aðgangur ókeypis – verið öll velkomin.
"*" indicates required fields