
Fimmtudaginn 26. febrúar kl. 18-20 bjóðum við ykkur til útgáfuhófs í tengslum við sýningu Unu Bjargar Magnúsdóttur, Fyllingu, sem stendur yfir í safninu til 1. mars.
Þá fögnum við útgáfu nýs rits sem ber sama titil og sýningin en útgáfan inniheldur texta eftir Lani Yamamoto og Ragnar Helga Ólafsson, auk viðtals Páls Hauks Björnssonar við listamanninn. Einnig er í útgáfunni fjöldi ljósmynda af sýningunni, sem teknar voru af Vigfúsi Birgissyni.
Hönnun er í höndum Hrefnu Sigurðardóttur og útgefandi er Hafnarborg, með stuðningi frá Launasjóði listamanna og Myndlistarsjóði.
Á sýningunni stikar Una Björg nýtt rými innan aðalsalar Hafnarborgar og tvinnar þar saman tímalínur byggingarinnar, sögulegar og skáldaðar. Önnur verk eru unnin sérstaklega fyrir sýninguna, skúlptúrar, myndverk og pappírsverk, sem búa til fínlega frásögn sem reiðir sig á eiginleika rýmisins, efni þess og birtu, möguleika og takmarkanir. Sýningarstjóri er Þórdís Jóhannesdóttir.
Aðgangur ókeypis – verið öll velkomin.
"*" indicates required fields