Hafnarborg merki

Hafnarborg

Spjall
29.08.26 | 14:00 - 15:00

spássían – listamanna- og sýningarstjóraspjall

Laugardaginn 29. ágúst kl. 14 bjóðum við ykkur velkomin á listamanna- og sýningarstjóraspjall með Gabi Schillig og Hildi Elísu Jónsdóttur, sem eiga verk á haustsýningu Hafnarborgar spássíunni, og sýningarstjórunum Katrínu Björgu Gunnarsdóttur og Úlfi Braga Einarssyni. Saman munu þau leiða gesti um sýninguna og ræða hugmyndirnar að baki henni, auk þess sem Gabi og Hildur Elísa segja frá eigin listsköpun og því hvernig verk þeirra takast á við spássíuna. Spjallið verður á íslensku og ensku.

Sjónum er sérstaklega beint að sýningarrýminu sjálfu og hlutverki þess í sýningargerð – að þeim möguleikum sem búa í hinu óséða eða gleymda, í tóminu sem er í raun aldrei tómt. Arkitektúrinn myndar þannig ekki aðeins umgjörð verkanna heldur verður virkur þáttur í mótun sýningarinnar. Hefðbundin sýningargerð beinist gjarnan að miðlægum punktum og augnhæð áhorfenda en hér er dvalið sérstaklega við jaðarinn, þar sem krókar, kimar og aðrir minna áberandi fletir safnrýmisins eru dregnir fram og fá aukið vægi í heildarupplifun sýningarinnar.

Á sýningunni eiga sex listamenn í beinu samtali við sýningarrýmið. Þau vinna með ólíka miðla en eiga það öll sameiginlegt að takast á við rýmið, hvort sem er í gegnum efni, hugmynd eða uppsetningu. Þannig verður spássían sjálf að viðfangsefni sýningarinnar, bæði sem raunverulegt rými og hugmynd.
Listamennirnir eru Daníel Ágúst Ágústsson, Gabi Schillig, Hildur Elísa Jónsdóttir, Iyo Hasegawa, Joe Keys og Shiori Ono. Sýningarstjórar eru Katrín Björg Gunnarsdóttir og Úlfur Bragi Einarsson.

Aðgangur ókeypis – verið öll velkomin.

Skráðu þig á póstlistann okkar

Fylgstu með því nýjasta sem er fram undan á safninu.

"*" indicates required fields

Bóka heimsókn