Föstudaginn 27. mars kl. 18 mun píanóleikarinn, söngkonan og tónskáldið Anna Gréta koma fram ásamt tríói sínu á næstu Síðdegistónum í Hafnarborg. Með henni leika þeir Þorgrímur Jónsson á kontrabassa og Einar Scheving á trommur.

Anna Gréta hefur verið búsett í Svíþjóð undanfarin ár en síðan hún var valin Bjartasta vonin á íslensku tónlistarverðlaunum 2015 hefur hún hlotið fjölda verðlauna og tilnefninga bæði hérlendis og erlendis. Eftir að hafa gefið út tvær plötur hjá hinni virtu djassútgáfu ACT Music – Nightjar in the Northern Sky (2021) og Star of Spring (2024) – hefur hún skipað sér í fremstu röð djasstónlistarfólks á Norðurlöndum. Báðar plötur hlutu lof gagnrýnenda víðs vegar um heim og hefur tónlist hennar samtals verið streymt yfir 3 milljón sinnum á streymisveitum. Í Svíþjóð hefur Anna Gréta hlotið ýmis verðlaun fyrir leik sinn, meðal annars Monica Zetterlund-verðlaunin og Ystad Jazz Piano Award, ásamt því að hafa verið útnefnd einn eftirsóttasti djasspíanóleikarinn í Stokkhólmi.
Tónleikarnir standa í um klukkustund og er aðgangur ókeypis.
Tónleikaröðin er styrkt af Hafnarfjarðarbæ og Menningarsjóði FÍH.
"*" indicates required fields