Hafnarborg merki

Hafnarborg

Tónleikar
27.02.26 | 18:00 - 19:00

Síðdegistónar – Kristjana Stefánsdóttir

Föstudaginn 27. febrúar kl. 18 mun söngkonan Kristjana Stefánsdóttir koma fram á fyrstu Síðdegistónum ársins 2026 í Hafnarborg ásamt þeim Birgi Steini Theódórssyni á bassa og Andrési Þór á gítar. Á efniskránni verða ýmsir djasshúsgangar úr ýmsum áttum.

Kristjana Stefánsdóttir hefur verið leiðandi tónlistarkona á íslenskri djasstónlistarsenu um árabil og verðlaunað tónskáld fyrir leiksýningar og söngleiki. Hún hefur hljóðritað bæði í eigin nafni og kemur reglulega fram í útvarpi, sjónvarpi og á tónleikum, bæði hérlendis og erlendis. Kristjana starfar reglulega með öðru tónlistarfólki, svo sem Stórsveit Reykjavíkur og Jazzkonum, auk þess að starfa með sínum eigin böndum.

Tónleikarnir standa í um klukkustund og er aðgangur ókeypis.

Tónleikaröðin er styrkt af Hafnarfjarðarbæ og Menningarsjóði FÍH. 

Skráðu þig á póstlistann okkar

Fylgstu með því nýjasta sem er fram undan á safninu.

"*" indicates required fields

Bóka heimsókn