Föstudaginn 27. febrúar kl. 18 mun söngkonan Kristjana Stefánsdóttir koma fram á fyrstu Síðdegistónum ársins 2026 í Hafnarborg ásamt þeim Birgi Steini Theódórssyni á bassa og Andrési Þór á gítar. Á efniskránni verða ýmsir djasshúsgangar úr ýmsum áttum.

Kristjana Stefánsdóttir hefur verið leiðandi tónlistarkona á íslenskri djasstónlistarsenu um árabil og verðlaunað tónskáld fyrir leiksýningar og söngleiki. Hún hefur hljóðritað bæði í eigin nafni og kemur reglulega fram í útvarpi, sjónvarpi og á tónleikum, bæði hérlendis og erlendis. Kristjana starfar reglulega með öðru tónlistarfólki, svo sem Stórsveit Reykjavíkur, Svavari Knúti, Ragnheiði Gröndal, Daða Birgissyni, Kjartani Valdemarssyni og Sigurði Flosasyni, auk þess að starfa með sínum eigin böndum.
Tónleikarnir standa í um klukkustund og er aðgangur ókeypis.
Tónleikaröðin er styrkt af Hafnarfjarðarbæ og Menningarsjóði FÍH.
"*" indicates required fields