Fimmtudaginn 7. maí kl. 16-18 bjóðum við ykkur að vera viðstödd opnun sýningarinnar Rúna:letur í Hafnarborg í tengslum við HönnunarMars 2026.

Sýningin beinir sjónum að leturgerð listakonunnar Rúnu (Sigrúnar Guðjónsdóttir, f. 1926), sem grafíski hönnuðurinn Elías Rúni hefur nú endurgert í stafrænu formi. Letrið birtist upprunalega í lok sjötta áratugarins í bókinni Glaðheimakvöld, þar sem einkennandi form og hrynjandi þess koma þegar skýrt fram, auk þess sem það ber með sér handbragð og tíðaranda.
Sýningin varpar ljósi á ferlið á bak við gerð letursins og opnar um leið glugga inn í merkilegan þátt íslenskrar hönnunarsögu. Þar mætast varðveisla og endursköpun, rannsókn og hönnun, í verki sem tengir fortíðina við nýja notkun í samtímanum. Með því að færa letur Rúnu í stafrænt form, undir heitinu Rúna, er þessi mikilvægi arfur íslenskrar leturgerðar dreginn fram og fær nýtt líf. Letrið verður jafnframt gert aðgengilegt á heimasíðu Hafnarborgar, þar sem áhugasömum mun gefast kostur á að hlaða því niður til eigin nota.
Á löngum og fjölbreyttum ferli hefur myndsköpun Rúnu fundið sér farveg innan leirlistar, bókskreytinga, málverks og hönnunar. Hún hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar í gegnum tíðina, svo sem Fálkaorðuna og heiðursverðlaun Íslensku hönnunarverðlaunanna.
Aðgangur ókeypis – verið öll velkomin.
"*" indicates required fields