Þriðjudaginn 12. maí kl. 19-21 verður boðið upp á hugleiðslu undir leiðsögn Jennyar Huldu- Aradóttur, sem er einnig þekkt sem Ravi, innan um verk Rögnu Fróða á sýningunni Bergmáli, Í gegnum hugleiðslu, söng, trommur og tóna mun Ravi bjóða gestum í innra ferðalag innblásið af list Rögnu og töfrum skógarins. Mælt er með að gestir komi með púða og teppi og láti fara vel um sig í rýminu.

Á sýningunni býður Ragna Fróða okkur inn í töfrandi heim mynstra, lita, forma og áferða. Heimur Rögnu er í senn kunnuglegur og framandi, nostalgískur og nýstárlegur. Upphafspunktur verkanna á sýningunni eru blekteikningar sem unnar eru í flæði og í beinu samtali milli undirmeðvitundar og handar. Í gegnum marglaga vinnuferli umbreytist hin óhefta lína frá handgerðri teikningu yfir í stafrænt útsaumuð verk sem birtast á mörkum hins óhlutbundna og fígúratífa. Verk Rögnu snúast um sköpunarferlið sjálft – samspil lita, áferða og sagna sem felast í mynstrum og táknum textílsins. Með því að sameina hefðbundið handverk og nútímatækni leitast Ragna við að víkka út mörk handverks, textílhönnunar og myndlistar.
Jenny Huldu- Aradóttir hefur lagt stund á kennslufræði, jógafræði og shamanískt nám í áratugi og leitast við að sameina ólíkar nálganir í eina heild. Hún hefur ferðast um heiminn, hitt ólíka menningarhópa og kennara úr ýmsum áttum sem eiga það sameiginlegt að styðja við mannkyn á umbreytingartímum. Ravi er nýlega komin frá Amazon-skóginum þar sem hún dvaldi í ellefu mánuði með frumbyggjum af ættflokki Huni Kuin. Þar fékk hún einstakt tækifæri til að tengjast ævafornri visku skógarins og lifa og læra með fólki sem kallað hefur verið verndarar og boðberar náttúrunnar. Þá hefur Ravi undanfarin ár tileinkað vinnu sína, nám og líf til uppbyggingar samfélaga sem heiðra náttúruna, visku hennar og anda sem býr allt um kring og hið innra.
Aðgangur ókeypis – verið öll velkomin.
"*" indicates required fields