Föstudaginn 27. mars til sunnudagsins 29. mars sýnir Hafnarborg stutt vídeóverk eftir listakonuna Clare Langan í tengslum við hreyfimyndahátíðina Physical Cinema Festival 2026.

Í safninu má sjá verkið Heart of a Tree (2020) sem gerist í hrjóstrugu landslagi, þar sem engin tré er að finna, og dregur upp mynd af framtíð þar sem mannkynið þarf að aðlagast til að lifa af í heimi sem er mótast af vistfræðilegu hruni. Þá fjallar verkið um mikilvægi trjágróðurs fyrir líf á jörðinni og beinir sjónum að rofnu sambandi mannsins við náttúruna.
Eftir myrkur er svo einnig hægt að sjá Future Primal (2018) eftir Clare á gafli Hafnarborgar. Verkið fjallar sömuleiðis um þróun og framtíð mannkynsins á tímum þegar fjöldi tegunda er á barmi útrýmingar. Verkin sitja þannig á milli vísindaskáldskapar, getgátna og pælinga um náttúruna.
Physical Cinema Festival snýst um að fagna kvikmyndum og fjölbreyttum listformum með því að sýna bæði stutt vídeóverk og heimildamyndir í fullri lengd. Á dagskrá hátíðarinnar eru jafnt gjörningar, myndlistar- og hljóðverk, tónlist og kvikmyndir.
"*" indicates required fields