Hafnarborg merki

Hafnarborg

Opnun
04.06.26 | 18:00 - 20:00

Opnun – Stór heimur og Verso/Recto

Fimmtudaginn 4. júní kl. 18 bjóðum við ykkur hjartanlega velkomin á opnun sýninganna Stórs heims eftir Helga Þorgils Friðjónsson og Verso/Recto eftir Svein Fannar Jóhannsson.

Helgi Þorgils Friðjónsson
Stór heimur

Á sýningu Helga Þorgils Friðjónssonar, Stórum heimi, mætast draumkenndur veruleiki og íhugun um tilveru mannsins og samband hans við náttúruna, þar sem maður og náttúra birtast sem órjúfanleg heild. Myndmál listamannsins er fígúratíft og frásagnarkennt, samsett úr ótal táknum. Fígúrurnar birtast í óræðum en jafnframt kunnuglegum aðstæðum þar sem íslensk náttúra, fuglar, sjávardýr, trúarlegir og táknrænir þættir fléttast saman á ljóðrænan hátt. Myndheimurinn er bæði fíngerður og kraftmikill og fagurfræðin leitar út fyrir hinn jarðbundna veruleika. Stór heimur, þar sem frásögn og tilfinning vinna saman og fegurðin svífur á mörkum hins skynjanlega og hins ímyndaða.
Sýningarstjóri er Aldís Arnardóttir.

Helgi Þorgils Friðjónsson hefur um áratugaskeið verið einn af afkastamestu myndlistarmönnum landsins. Allt frá upphafi ferilsins á miðjum áttunda áratugnum vakti hann athygli fyrir nýstárlegan og persónulegan frásagnarmáta sem hefur skapað honum sérstöðu í íslensku myndlistarlífi og viðurkenningu á alþjóðlegum vettvangi. Á löngum ferli hefur myndmál hans verið í stöðugri þróun, þar sem tilvist mannsins er í forgrunni. Helgi Þorgils hefur sýnt víða um heim frá árinu 1974, meðal annars fyrir hönd Íslands á Feneyjatvíæringnum árið 1990 og í virtum söfnum og sýningarrýmum í Evrópu og Bandaríkjunum.

Sveinn Fannar Jóhannsson
Verso/Recto

Í gegnum árin hefur Sveinn Fannar Jóhannsson safnað ljósmyndum sem hann hefur fundið á förnum vegi, utan við upprunalegt samhengi: myndir af pörum, af strandlengju, af óskreyttu jólatré. Flokkarnir eru kunnuglegir en staðsetningin er óljós. Á sýningunni birtast ljósmyndirnar líkt og þær séu gagnsæjar. Ljósmyndir af bakhliðum fundnu myndanna eru teknar þannig að framhlið þeirra, eða recto, skín dauflega í gegn. Bakhlið, eða verso, hverrar myndar er svo sýnd ásamt hljóðverki sem er unnið upp úr viðræðum listamannsins við ýmsa miðla. Verkið dregur okkur inn í sjálfa túlkunarathöfnina – áhorf og hlustun fléttast saman og skynjunin fer ekki fram í þeirri röð sem við eigum að venjast.
Sýningarstjóri er Daría Sól Andrews.
Sýningin nýtur stuðnings frá Norske Billedkunstnere, Norsk Fotografisk Fond og Office for Contemporary Art Norway.

Það sem tengir verkin saman er sameiginleg áhersla þeirra á að samhengi sé hlutbundið. Merkingin mótast af tilfærslu og umgjörð. Þessi verk gera okkur meðvitaðri um það hvernig við horfum á hlutina: hversu skjótt við reynum að negla niður visst samhengi, áreiðanlega frásögn eða heimild. Enda minna þau okkur á að trú, túlkun og minni eru háð mörgum samtengdum þáttum.

Aðgangur ókeypis – sjáumst í Hafnarborg.

Skráðu þig á póstlistann okkar

Fylgstu með því nýjasta sem er fram undan á safninu.

"*" indicates required fields

Bóka heimsókn