Hafnarborg merki

Hafnarborg

04.06.25 | 20:00 - 22:00

Menningarganga – Á málaraslóðum

Salur
Hafnarborg

Miðvikudaginn 4. júní kl. 20 mun Jónatan Garðarsson leiða göngu um slóðir tveggja vel þekktra hafnfiskra listamanna, þeirra Eiríks Smith og Sveins Björnssonar, sem báðir hefðu orðið 100 ára á þessu ári en af því tilefni standa yfir sýningar á verkum listamannanna í Hafnarborg í sumar. Gangan hefst við safnið og farið verður meðal annars um Suðurgötu, Kinnahverfið og upp í Setberg.

Í göngunni verður staldrað við ýmsa staði sem tengjast lífi og list þeirra Eiríks og Sveins. Eiríkur hélt sína fyrstu sýningu í Sjálfstæðishúsinu en hann bjó einnig um tíma á Selvogsgötu, Þýskubúð og víðar í Hafnarfirði.  Á Suðurgötunni verður rifjað upp að þar var áður lögreglustöð bæjarins en í gamla sýslumannshúsinu þar fyrir ofan hafði Sveinn skrifstofu um árabil – og var þekktur fyrir að skissa á allt sem hendur hans komust yfir. Sveinn hóf hins vegar listferil sinn þegar hann var sjómaður og bjó þá á Öldugötu. Hann byggði síðar hús í Köldukinn og Eiríkur reisti sömuleiðis hús við Stekkjarkinn.

Þá verður gengið um gamla Kanaveginn þar sem Eiríkur brenndi fjölmargar myndir og þaðan haldið upp í Setberg að heimili hans þar. Á heimleið verður farið um Sunnuveg, þar sem Sveinn og Sólveig leigðu hjá Hákoni, teiknikennara. Þar á móti bjó svo listmálarinn Gunnlaugur Scheving, sem hafði mikinn áhuga á þeim myndum sem Sveinn málaði á sjónum.

Gengið verður frá Hafnarborg.

Hafnarfjarðarbær býður upp á menningar- og heilsugöngur öll miðvikudagskvöld í sumar. Flestar göngurnar taka um klukkustund og hefjast kl. 20, nema annað sé tekið fram. Menningar- og heilsugöngur eru samstarfsverkefni Hafnarborgar, Byggðasafns Hafnarfjarðar, Bókasafns Hafnarfjarðar og Heilsubæjarins Hafnarfjarðar. Þátttaka er ókeypis og öll velkomin.

Skráðu þig á póstlistann okkar

Fylgstu með því nýjasta sem er fram undan á safninu.

"*" indicates required fields

Bóka heimsókn