Hafnarborg merki

Hafnarborg

Smiðjur
19.02.26 - 20.02.26 | 13:00 - 15:00

Listasmiðjur í vetrarfríi – Búum til blóm og Skrípó

Hafnarborg býður grunnskólabörnum í Hafnarfirði að koma og taka þátt í skapandi listasmiðjum á vegum safnsins í vetrarfríi dagana 19. og 20. febrúar. Smiðjurnar eru opnar þeim sem vilja láta sköpunargleðina flæða og njóta þess að vinna með fjölbreyttan efnivið. Smiðjurnar verða hvor með sínu sniðinu, svo velkomið er að taka þátt annan eða báða dagana.

Búum til blóm
Fimmtudaginn 19. febrúar kl. 13-15

Í smiðjunni sækja þátttakendur innblástur í sýningu Eggerts Péturssonar, Roða, þar sem litir, lífræn form og náin tengsl við náttúruna eru í forgrunni. Í kjölfarið sköpum við lítil og falleg blóm úr fíngerðum vír og perlum, þar sem unnið er með línu, form og jafnvægi á leikandi og hugmyndaríkan hátt.

Skrípó-vinnustofa
Föstudaginn 20. febrúar kl. 13-15

Rithöfundurinn og myndlistarmaðurinn Atla Hrafney mun leiða þátttakendur inn í heim myndasagna, þar sem við spreytum okkur á að skapa eigin persónur, segja sögur með myndum og texta og þróa hugmyndir á frjálsan og leikandi hátt. Smiðjan er tilvalin fyrir þau sem eru alltaf að teikna eitthvað skemmtilegt eða vilja læra að búa til fyndnar myndasögur.

Smiðjurnar fara fram í Apótekinu á fyrstu hæð safnsins en mælst er til að börn mæti í fylgd fullorðinna. Eins og venjulega er þátttaka í listasmiðjum gestum að kostnaðarlausu, líkt og aðgangur að sýningum safnsins. Verið hjartanlega velkomin.

Skráðu þig á póstlistann okkar

Fylgstu með því nýjasta sem er fram undan á safninu.

"*" indicates required fields

Bóka heimsókn