Hafnarborg merki

Hafnarborg

Spjall
07.12.25 | 14:00 - 15:00

Listamannsspjall – Una Björg Magnúsdóttir

Staðsetning
Hafnarborg

Sunnudaginn 7. desember kl. 14 mun Una Björg Magnúsdóttir, myndlistarmaður, taka á móti gestum og fjalla um einkasýningu sína, Fyllingu, ásamt Þórdísi Jóhannesdóttur, sýningarstjóra. Þá kannar sýningin hvernig verk enduróma í gegnum efni og tíma, með því að varpa ljósi á samspil efnis, yfirborðs og rýmis.

Í aðalsal Hafnarborgar stikar Una Björg nýtt rými innan sjálfs sýningarsalarins sem stendur utan um reisulegt hús frá 1921, sem áður hýsti heimili og apótek. Aðalsalurinn ber þess skýr merki þar sem bogadregin framhlið eldra hússins er áberandi kennileiti salarins. Eitt af aðalverkum sýningarinnar leikur sama leik – lágreist skilrúm teygir sig um rýmið, mótar sig eftir salnum en stikar þó nýtt rými innan þess – tómarými, nýtt svið, mögulegan leikvang. Önnur verk eru unnin sérstaklega fyrir sýninguna, skúlptúrar, myndverk og pappírsverk, sem búa til fínlega frásögn sem reiðir sig á eiginleika rýmisins, efni þess og birtu, möguleika og takmarkanir. Þá tvinna þau saman tímalínur byggingarinnar, sögulegar og skáldaðar, og velta upp tengslum fyrirmynda og eftirmynda.

Una Björg Magnúsdóttir (f. 1990) beitir ýmsum aðferðum í verkum sínum til að velta upp spurningum um fegurð, gildi, tilvist og hegðun. Hún notar áferð og gildishlaðin efni á slunginn en sparlegan hátt, þar sem nákvæmar uppstillingar og fábrotnir munir skapa ákveðið sýndaryfirborð sem hreyfir við hefðbundnum hugmyndum um merkingu og skynjun. Una Björg nam við Listaháskóla Íslands og ÉCAL í Sviss þaðan sem hún útskrifaðist árið 2018. Hún býr og starfar í Reykjavík og hefur sýnt víða, meðal annars í Listasafni Reykjavíkur, Listasafni ASÍ, Gerðarsafni og Künstlerhaus Bethanien í Berlín. Hún var tilnefnd sem Myndlistarmaður ársins á Íslensku myndlistarverðlaununum 2025 og hlaut Guðmunduverðlaunin árið 2024.

Aðgangur ókeypis – verið öll velkomin.

Skráðu þig á póstlistann okkar

Fylgstu með því nýjasta sem er fram undan á safninu.

"*" indicates required fields

Bóka heimsókn