Miðvikudaginn 27. maí kl. 20 mun austurríska listakonan Ingrid Gaier taka á móti gestum og kynna vídeóverk sitt STITCHES, sem hún hefur unnið að í gestavinnustofu Hafnarborgar. Á viðburðinum verður einnig tónlistarflutningur á verki Bjargar Brjánsdóttur, flautuleikara og tónskálds.

Í verkum sínum skoðar Gaier hvernig minningar, ævisögur kvenna og lífsreynsla taka á sig mynd í textíl, teikningu, ljósmyndun og hreyfimyndum. Í STITCHES veltir hún fyrir sér sögunni af útsaumuðum altarisdúk sem tengist Þorbjörgu Eyjólfsdóttur, íslenskri konu sem sagan segir að hafi verið numin á brott í Tyrkjaráninu árið 1627 og sneri síðar aftur til Íslands. Í ánauðinni hafði hún heitið því að gefa Holtskirkju altarisdúk ef hún endurheimti frelsi sitt og eftir heimkomuna efndi hún heit sitt. Altarisdúkurinn er nú hluti af safneign Skógasafns þar sem hann er til sýnis.
Viðburðurinn er haldinn í tengslum við dvöl listakonunnar í gestavinnustofu Hafnarborgar og veitir innsýn í rannsókn Gaier á altarisdúknum, þar sem hún rekur lítt þekktan þráð í þessum kafla Íslandssögunnar. Í verkinu STITCHES leitar listakonan í sögulega hefð textílsins, munnlegar heimildir og myndmál dúksins og notar hreyfimyndatækni til að beina sjónum að mikilvægri sögu altarisdúksins, bæði á persónulegan og sögulegan hátt. Þannig opnast jafnframt fyrir stærri spurningar um efnislegt minni, textíl og þær sögur sem handverk getur borið með sér.
Ingrid Gaier (f. 1967) býr og starfar í Vín. Þá vinnur hún með teikningu, textíl, hreyfimyndir, skrif, rannsóknir á heimildum og fleira. Hún er deildarstjóri textílhönnunardeildarinnar við Fashion Institute Vienna.
Ókeypis aðgangur – verið öll velkomin.
"*" indicates required fields