
Sunnudaginn 26. apríl kl. 20 fara fram í Hafnarborg tónleikar Sorayu Nayyar, slagverksleikara, og Jaceks Karwans, kontrabassaleikara. Þá munu þau bjóða upp á fjölbreytta efnisskrá sem beinir kastljósinu að sjálfum kontrabassanum og slagverkinu, hljóðfærum sem oft gegna stuðningshlutverki í stærri hljómsveitarsamsetningum en fá hér að vera í forgrunni og njóta sín í flutningi framúrskarandi flytjenda. Á efnisskránni eru verk eftir tónskáldin Michio Kitazume, Frederic Rzewski og Áskel Másson, auk fleiri höfunda. Viðburðurinn er hluti af tónleikaröð Hafnarborgar, Hljóðönum.
Miðar eru seldir á Tix og í Hafnarborg. Almennt miðaverð er 2.900 krónur og er verð fyrir eldri borgara og námsmenn 1.900 krónur. Húsið opnar kl. 19:30.
Hljóðön, tónleikaröð Hafnarborgar, er sérstaklega tileinkuð tónlist 20. og 21. aldar, þar sem einstök hugmyndaauðgi og listræn glíma tónskálda leiða áheyrendur inn á áður ókunnar slóðir en tónleikaröðin hefur verið hluti af dagskrá Hafnarborgar síðan 2013.
Soraya Nayyar, slagverksleikari, fæddist í Bretlandi en ólst upp og hóf tónlistarnám sitt í Póllandi. Hún lauk námi frá Universität der Künste í Berlín og er nú pákuleikari og leiðari hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands. Soraya hefur leikið með ýmsum vel þekktum hljómsveitum á borð við Beethoven Orchester Bonn, Komische Oper Berlin, Konzerthaus Orchester Berlin og Staatsoper Hannover. Hún hefur sérstakan áhuga á kammertónlist ásamt því að leika og kynnast nýjum og ólíkum stílum og tegundum tónlistar. Á Íslandi hefur hún komið fram með Caput, Kammersveit Reykjavíkur og Elju Ensemble. Þar að auki hefur hún komið á fót sinni eigin tónleikaröð, The Chamber Express.
Jacek Karwan, kontrabassaleikari, stundaði nám við Universität der Künste í Berlín og Hochschule für Musik í Basel. Jacek hefur komið víða fram og meðal leikið einleik með Podlasie fílharmóníunni, Reykjavík Midsummer Music tónlistarhátíðinni og á Euro kammertónlistarhátíðinni. Á námsárunum lék hann með hljómsveitum á borð við musicAeterna Orchestra, Gustav Mahler Jugendorchester og European Union Youth Orchestra og kom fram á tónlistarhátíðum á borð við BBC Proms, Edinborgarhátíðinni og Salzburger Festspiele. Hann er einn af stofnendum Polish Soloist Ensemble og hefur verið virkur í íslensku tónlistarlífi, þar sem hann hefur meðal annars leikið í hljómsveit Íslensku óperunnar og með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands. Jacek var áður leiðari við Gorzow-fílharmóníuna en er nú fastráðinn hljóðfæraleikari hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands.
"*" indicates required fields