Sunnudaginn 14. júní kl. 13 mun Helgi Þorgils Friðjónsson, myndlistarmaður, taka á móti gestum og ræða um nýopnaða einkasýningu sína, Stóran heim, ásamt Aldísi Arnardóttur, sýningarstjóra og forstöðumanni Hafnarborgar.

Á sýningu Helga Þorgils Friðjónssonar, Stórum heimi, mætast draumkenndur veruleiki og íhugun um tilveru mannsins og samband hans við náttúruna, þar sem maður og náttúra birtast sem órjúfanleg heild. Myndmál listamannsins er fígúratíft og frásagnarkennt, samsett úr ótal táknum. Fígúrurnar birtast í óræðum en jafnframt kunnuglegum aðstæðum þar sem íslensk náttúra, fuglar, sjávardýr, trúarlegir og táknrænir þættir fléttast saman á ljóðrænan hátt. Myndheimurinn er bæði fíngerður og kraftmikill og fagurfræðin leitar út fyrir hinn jarðbundna veruleika. Stór heimur, þar sem frásögn og tilfinning vinna saman og fegurðin svífur á mörkum hins skynjanlega og hins ímyndaða.
Helgi Þorgils Friðjónsson hefur um áratugaskeið verið einn af afkastamestu myndlistarmönnum landsins. Allt frá upphafi ferilsins á miðjum áttunda áratugnum vakti hann athygli fyrir nýstárlegan og persónulegan frásagnarmáta sem hefur skapað honum sérstöðu í íslensku myndlistarlífi og viðurkenningu á alþjóðlegum vettvangi. Á löngum ferli hefur myndmál hans verið í stöðugri þróun, þar sem tilvist mannsins er í forgrunni. Helgi Þorgils hefur sýnt víða um heim frá árinu 1974, meðal annars fyrir hönd Íslands á Feneyjatvíæringnum árið 1990 og í virtum söfnum og sýningarrýmum í Evrópu og Bandaríkjunum.
Aðgangur ókeypis – verið öll velkomin.
"*" indicates required fields