Hafnarborg merki

Hafnarborg

Tónleikar
03.03.26 | 12:00 - 12:30

Hádegistónleikar – Alda Ingibergsdóttir

Þriðjudaginn 3. febrúar kl. 12 bjóðum við ykkur velkomin á næstu hádegistónleika í Hafnarborg en þá verður Alda Ingibergsdóttir, sópran, gestur Antoníu Hevesi, píanóleikara og listræns stjórnanda tónleikaraðarinnar.

Alda Ingibergsdóttir er fædd og uppalin í Hafnarfirði. Hún lauk einsöngvaraprófi frá Söngskólanum í Reykjavík og fór síðan í framhaldsnám við Trinity College of Music í London, þaðan sem hún útskrifaðist með „Fellowship Diploma“. Meðal hlutverka Öldu eru Pamina í Töfraflautunni, Lillian Russell í The Mother of Us All eftir Virgil Thomson, fyrsti andi í Töfraflautunni, Dísa í Galdra-Lofti Jóns Ásgeirssonar, Næturdrottningin í Töfraflautunni, Arzena í Sígaunabaróni Strauss, Helena fagra í samnefndri óperu Offenbachs og káta ekkjan í samnefndri óperettu Lehárs. Þá hefur Alda haldið tónleika víða og komið fram sem einsöngvari ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands og Tufts Symphony Orchestra í Boston.

Antonía Hevesi, píanóleikari, hefur frá upphafi verið listrænn stjórnandi hádegistónleika í Hafnarborg, sem hafa verið fastur liður í dagskrá safnsins síðan 2003. Þar hefur Antonía fengið til liðs með sér marga af fremstu söngvurum landsins en markmiðið með tónleikunum að veita gestum tækifæri til að njóta lifandi tónlistarflutnings í góðu tómi. Þá fara hádegistónleikarnir að jafnaði fram fyrsta þriðjudag hvers mánaðar yfir vetrartímann.

Tónleikarnir hefjast kl. 12 og standa yfir í um hálfa klukkustund. Húsið opnar kl. 11:30 og tónleikarnir eru öllum opnir á meðan húsrúm leyfir. Aðgangur ókeypis.

Skráðu þig á póstlistann okkar

Fylgstu með því nýjasta sem er fram undan á safninu.

"*" indicates required fields

Bóka heimsókn