
Sveinn Fannar Jóhannsson hefur lengi unnið með fundnar ljósmyndir og annað efni sem hefur lent utan við upprunalegt samhengi sitt. Við sjáum myndir af pörum, af strandlengju, af óskreyttu jólatré. Flokkarnir eru kunnuglegir en hnitin horfin. Það sem er þó svo grípandi er ekki aðeins treginn sem þessar týndu myndir bera með sér, heldur það sem þær draga í leiðinni fram. Þá veltur merking þeirra á einhvers konar umgjörð, það er að segja á því að einhver gefi þeim samhengi. Án slíkrar festu fer myndin á flakk og sýnir hversu mjög það sem við sjáum mótast af því sem áhorfandinn les í hana út frá sjálfum sér.
Það sem bindur verkin á sýningunni saman er sameiginleg áhersla þeirra á að samhengi sé hlutbundið. Ljósmynd á gangstétt, setning í notaðri bók, mynd sem hefur fundið sér sína eigin leið út í heiminn. Merkingin verður til í gegnum tilfærslu og umgjörð. Þessi verk gera okkur því meðvitaðri um það hvernig við horfum á hlutina: hversu skjótt við reynum að negla niður visst samhengi, áreiðanlega frásögn eða heimild. Þá hvetja verkin okkur til að gefa gaum að þessari hvöt í eigin fari. Enda minna þau okkur á að trú, túlkun og minni eru háð mörgum samtengdum þáttum.
Sveinn Fannar Jóhannsson (f. 1977) býr og starfar í Osló, Noregi. Í verkum sínum vinnur hann meðal annars með ljósmyndun, skúlptúr, útgáfu og sýningarstjórn. Þá fæst hann gjarnan við stöðu höfundar, skrásetningu og félagslega merkingu mynda, svo sem í formi sýninga, bóka eða annars prentaðs efnis. Verk hans kanna samband daglegs lífs, listmunarins og þess samhengis sem sýningar skapa, þar sem ólíkum miðlum og efnivið er oft fléttað saman innan sama verks. Hann stundaði nám við Listaakademíuna í Leipzig á árunum 2003 til 2009. Frá árinu 2012 hefur hann rekið sjálfstæða forlagið Multinational Enterprises.
Sýningin nýtur stuðnings frá Norske Billedkunstnere, Norsk Fotografisk Fond og Office for Contemporary Art Norway.
"*" indicates required fields