
Á sýningunni getur að líta ný og nýleg verk eftir Helga Þorgils Friðjónsson, unnin á síðastliðnum fimm árum. Helgi Þorgils hefur um áratugaskeið verið einn af afkastamestu myndlistarmönnum landsins. Allt frá upphafi ferlisins á miðjum áttunda áratugnum vakti hann athygli fyrir nýstárlegan og persónulegan frásagnarmáta sem hefur skapað honum sérstöðu í íslensku myndlistarlífi og viðurkenningu á alþjóðlegum vettvangi. Á löngum ferli hefur myndmál hans verið í stöðugri þróun, þar sem tilvist mannsins er í forgrunni. Þá hefur megináhersla hans verið á málverkið en hann vinnur jöfnum höndum með fjölbreytta miðla, svo sem skúlptúr, teikningu og vatnsliti, auk þess sem hann fæst við skrif.
Í verkum Helga Þorgils mætast draumkenndur veruleiki og íhugun um tilveru mannsins og samband hans við náttúruna, þar sem maður og náttúra birtast sem órjúfanleg heild. Myndmál listamannsins er fígúratíft og frásagnarkennt, samsett úr ótal táknum. Á undanförnum árum hafa fígúrurnar í myndheimi Helga Þorgils færst frá fáguðum, hvítum og nánast kynlausum líkömum – sem svífa um í eins konar tímaleysi – í átt til meiri líkamleika. Þær birtast í óræðum en jafnframt kunnuglegum aðstæðum þar sem íslensk náttúra, fuglar, sjávardýr, trúarlegir og táknrænir þættir fléttast saman á ljóðrænan hátt. Myndheimurinn er bæði fíngerður og kraftmikill og fagurfræðin leitar út fyrir hinn jarðbundna veruleika. Stór heimur þar sem frásögn og tilfinning vinna saman og fegurðin svífur á mörkum hins skynjanlega og hins ímyndaða.
Helgi Þorgils Friðjónsson (f. 1953) nam við Myndlista- og handíðaskóla Íslands á árunum 1971-1976 og hélt síðar í framhaldsnám við De Vrije Academie í Den Haag og Jan van Eyck Academie í Maastricht. Hann hefur sýnt víða um heim frá árinu 1974, meðal annars fyrir hönd Íslands á Feneyjatvíæringnum árið 1990 og í virtum söfnum og sýningarrýmum í Evrópu og Bandaríkjunum. Hann var meðal stofnenda Nýlistasafnsins árið 1978 og hefur jafnframt rekið eigið sýningarrými, Ganginn, á heimili sínu um árabil.
"*" indicates required fields