
Sýningin spássían beinir sjónum að sýningarrýminu sjálfu og hlutverki þess í sýningargerð – að þeim möguleikum sem búa í hinu óséða eða gleymda, í tóminu sem er í raun aldrei tómt. Sýningin felur því í sér endurmat á möguleikum rýmisins, þar sem arkitektúrinn myndar ekki aðeins umgjörð verkanna heldur verður virkur þáttur í mótun sýningarinnar.
Hefðbundin sýningargerð beinist gjarnan að miðlægum punktum og augnhæð áhorfenda en hér er dvalið sérstaklega við jaðarinn. Þar verða krókar, kimar og aðrir minna áberandi fletir safnrýmisins dregnir fram og fá aukið vægi í heildarupplifun sýningarinnar. Rýmið hefur þannig áhrif á framvindu hennar, í samspili við verkin og áhorfendur.
Á sýningunni eiga sex listamenn í beinu samtali við sýningarrýmið. Þau vinna með ólíka miðla en eiga það öll sameiginlegt að takast á við rýmið, hvort sem er í gegnum efni, hugmynd eða uppsetningu. Þannig verður spássían sjálf að viðfangsefni sýningarinnar, bæði sem raunverulegt rými og hugmynd.
Listamennirnir sem eiga verk á sýningunni eru:
Daníel Ágúst Ágústsson
Gabi Schilling
Hildur Elísa Jónsdóttir
Iyo Hasegawa
Joe Keys
Ono Shiori
Sýningin er sú sextánda í haustsýningarröð Hafnarborgar, þar sem sýningarstjórum býðst að senda inn tillögu að sýningu í safninu og láta rödd sína heyrast í gegnum opið umsóknarferli ár hvert.
"*" indicates required fields