
Á sýningunni Hugrenningum koma saman tveir þræðir sem einkennt hafa listsköpun Styrmis Arnar Guðmundssonar frá upphafi: teikningin og gjörningurinn. Í teikningum sínum vinnur listamaðurinn eins og smiður, skipulega og innan fasts ramma myndflatarins. Í gjörningum er Styrmir Örn hins vegar líkari garðyrkjumanni sem lætur umhverfi og andrúmsloft ráða för.
Sýninguna má sjá sem yfirlit á stórum teikningum listamannsins sem orðið hafa til á síðustu 10 árum. Verkin eru öll í sömu stærð, sumar unnar með hléum yfir nokkurra ára tímabil en aðrar kláraðar í einum vetfangi. Þá hanga þær úr lofti sýningarsalarins og mynda innsetningu sem áhorfendur geta hreyft sig um. Frá sjónarhorni smiðsins er innsetningin undarlegur arkitektúr, þar sem verkin eru ýmist líkt og veggir sem byrgja sýn eða gáttir sem opna áður óþekkta leið. Með augum garðyrkjumannsins eru þau hins vegar eins og skógur, þar sem teikningarnar renna saman og mynda kræklótt rjóður þar sem vaxa framandi blóm.
Á sama tíma er innsetningin sviðsmynd, líkt og í leikhúsi eða ballett, fyrir nýjan gjörning listamannsins sem mun fara fram við opnun sýningarinnar. Gjörningurinn verður í framhaldi sýndur sem vídeóverk til hliðar við teikningarnar. Á sýningunni gerir Styrmir Örn tilhlaup að því að sameina ólíkar aðferðir teikningarinnar og gjörningsins og finna snertiflöt milli hins kyrra og kvika. Þannig vakna spurningar um form og virkni myndlistarinnar: er hægt að gæða teikningu lífi og hvað stendur eftir þegar gjörningurinn klárast?
Styrmir Örn Guðmundsson (f. 1984) vinnur með gjörninga, teikningar, skúlptúr og tónlist í listsköpun sinni, þar sem ólíkir miðlar og form fléttast saman í eina frásögn. Það sem byrjar sem teikning á pappír þróast jafnvel yfir í skúlptúr eða tónlist, sem verður svo að efniviði fyrir gjörning. Sögurnar sem listamaðurinn segir hafa hvorki upphaf né endi og áhorfendum er boðið inn í töfraheim þar sem allt getur gerst. Styrmir Örn stundaði nám við Gerrit Rietveld Academie og lauk framhaldsnámi frá Sandberg Instituut í Amsterdam, Hollandi, árið 2012. Verk hans hafa verið sýnd víða á undanförnum árum, bæði hérlendis og erlendis.
"*" indicates required fields