„Við sjáum það sem við viljum sjá“

Elín Sigríður María Ólafsdóttir

Á sýningunni getur að líta úrval verka sem spanna feril listakonunnar Elínar Sigríðar Maríu Ólafsdóttur, frá upphafi til dagsins í dag, en Elín var fyrr á árinu útnefnd listamanneskja hátíðarinnar Listar án landamæra 2024. Sköpunarkraftur og listhæfileikar Elínar komu snemma fram en ung að aldri var hún byrjuð að skapa listaverk í máli og myndum. Sömuleiðis hefur leiklist og skapandi tjáning á sviði verið stór þáttur í lífi Elínar en hún hefur starfað með leikhópnum Tjarnarleikhúsinu um árabil, gefið út ljóðabækur og komið að öllum þáttum leiksýninga, svo sem leikmyndagerð og búningahönnun.

Efnistök í verkum Elínar eru jafnan ævintýraleg og vinnur hún gjarnan með sjálfið á mismunandi hátt í myndheimi sínum. Listakonan hvetur gesti sýningarinnar til að nota ímyndunarafl sitt á sýningunni og jafnvel búa til stuttar sögur eða ljóð sem tengjast myndverkunum. Þá gefst gestum sýningarinnar færi á að stíga á stokk og fara með ljóð eða æfa upplestur að eigin vild – í samtali við skapandi vinnu Elínar.

Elín Sigríður María Ólafsdóttir (f. 1983), myndlistarkona, leikkona og skáld, hefur stundað nám af ýmsu tagi, einkum þó listnám bæði hér heima og erlendis, og lauk diplómanámi í myndlist fyrir fatlaða frá Myndlistaskóla Reykjavíkur árið 2017. Listaverk Elínar hafa birst víða bæði á einka- og samsýningum, þar á meðal í Listasal Mosfellsbæjar og í Safnasafninu, sem og í bókum og í tímaritum. Elín hefur jafnframt sýnt reglulega í samstarfi við List án landamæra, auk þess sem hún sinnir ráðgjöf um inngildingu sem meðlimur Listvinnzlunnar.