Jóhanna Kristbjörg Sigurðardóttir fæst við margþættar innsetningar þar sem hún fléttar saman ólíkum miðlum, svo sem hefðbundnum olíumálverkum, viðarskúlptúrum, vídeóverkum, textum og gjörningum. Í verkum hennar má finna óhlutbundnar birtingarmyndir á ljóðrænni tjáningu út frá því formræna tungumáli sem hún vinnur með. Þá ríkir mikil leikgleði í verkunum, sem eiga jafnt í samtali við samtímann sem og listasöguna, en þau einkennast af flæði óhlutbundinna forma og lita, sem hún vinnur með á ljóðrænan hátt líkt og um sjálfstætt tungumál sé að ræða. Á sýningunni í Hafnarborg eru innsetningar, sem samanstanda af málverkum, skúlptúrum og myndböndum, en flestar hafa ekki verið áður sýndar hérlendis.
Jóhanna Kristbjörg Sigurðardóttir er fædd árið 1982. Hún starfar bæði í Reykjavík og Antwerpen í Belgíu, þaðan sem hún lauk M.A. gráðu frá málaradeild KASK (2013) í Gent og tveggja ára postgratuate námi frá HISK, Higher Institute for Fine Arts (2014–2015) í Gent. Áður útskrifaðist hún með B.A. gráðu frá myndlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2008. Jóhanna er ein listamannanna hjá Trampoline Gallery í Antwerpen og einn af stofnendum ABC Klubhuis, sem er nýtt listamannarekið sýningarrými í Antwerpen. Jóhanna hefur sýnt verk sín víða, meðal annars í listasafninu S.M.A.K. í Gent, Moskvutvíæringnum 2015, Andersen’s Contemporary í Kaupmannahöfn, Ornis A. Gallery í Amsterdam og Kunsthalle São Paulo í Brazilíu.