Kyrr lífsferill

Helgi Vignir Bragason

Einkasýning Helga Vignis Bragasonar, Kyrr lífsferill, er myndræn rannsókn á byggingum og byggingarefnum – sem hafa verið viðfang ljósmyndarans um langa hríð. Myndefnið felur í sér marglaga greiningu á upphafi og endalokum bygginga, þar sem Helgi skoðar á gagnrýninn hátt fjölmargar hliðar byggingariðnaðarins, svo sem efnisnýtingu, sóun og umhverfisáhrif. Á sýningunni má meðal annars sjá kyrralífsmyndir sem unnar eru út frá byggingarúrgangi eða velmegunartáknum af byggingarsvæðum, auk mynda af steypubrotum og teikninga af byggingum sem hafa verið rifnar langt fyrir aldur fram.

Uppbygging og iðandi byggingasvæði eru nútímatákn hagsældar og velmegunar, rétt eins og 16. aldar kyrralífsmyndir hollenskra listamanna voru fyrir það samfélag sem þær spruttu úr. Fyrir hrun efnahagskerfisins árið 2008 var fjöldi byggingarkrana aftur á móti gjarnan túlkaður sem tákn um blómlega efnahagsstöðu landsins. Því fleiri sem kranarnir voru, því meiri var uppgangurinn í samfélaginu. Þannig má líta á uppstillta, innflutta byggingarkrana eins og góss frá fjarlægum löndum. Þó má einnig nefna að nánast ekkert á þeim byggingarsvæðum sem finna má hérlendis er íslenskt að uppruna – ekki sementið, ekki kerfismótin, ekki rafmagnsvírarnir, ekki stoðirnar – allt er þetta innflutt, sem og meirihluti vinnuaflsins.

Þessi þróun er skýrt merki um áhrif hagsældar og alþjóðavæðingar, sem ná vissulega langt út fyrir íslenskan byggingariðnað, enda höfum við hreinlega ekki nægan mannskap til að halda í við hagvöxt þjóðfélagsins. Í verkum sínum bendir listamaðurinn hins vegar á að í svo hröðum hagvexti skorti oft hagsýni, forsjálni og nýtni. Þá má jafnframt nefna að byggingar sem hafa jafnvel aðeins fengið að standa hálfa meðalævi manns eru í mörgum tilfellum rifnar niður til að rýma fyrir nýjum byggingum, sem vekur aftur spurningar um hverfult eðli byggðaþróunar og þann fórnarkostnað sem vill jafnan gleymast þegar hið manngerða umhverfi tekur breytingum.

Helgi Vignir Bragason (f. 1972) útskrifaðist með diplóma í skapandi ljósmyndun frá Ljósmyndaskólanum árið 2023. Áður hafði hann lokið M.Sc. námi í framkvæmdastjórnun frá Háskólanum í Reykjavík (2013) og B.Sc. gráðu í byggingarfræði frá Vitus Bering CVU í Horsens, Danmörku (2003). Þá tengjast verk Helga gjarnan áratugalangri reynslu hans af byggingariðnaðinum. Meðal nýlegra sýninga listamannsins má nefna ÁBATI – hugleiðing um efni í Slökkvistöðinni, Reykjavík (2024), og Ljósrák í Gallery Kannski, Reykjavík (2024). Helgi Vignir er meðlimur í FÍSL og SÍM og býr og starfar í Hafnarfirði.


Sýningin er hluti af Ljósmyndahátíð Íslands 2025.