Algjörar skvísur

Haustsýning Hafnarborgar 2025

Sýningin Algjörar skvísur býður gestum að kanna þemu sem tengjast mýkt, krafti og kvenlegri orku í samtímalist. Sýningin hverfist um ólíkar birtingarmyndir sætleikans, guðdómlegar og goðsagnakenndar kvenlegar erkitýpur og andahyggjuna sem lítur á (móður) náttúru sem síkvika veru. Þá eru þessar hugmyndir skoðaðar út frá því hvernig þær eiga við fólk, staði og hluti, einkum nú þegar segja má að kvenlegar erkitýpur séu að koma fram úr fylgsnum sínum og umbreyta skilningi okkar á sjálfsmynd og jafnvægi.

Á sýningunni getur að líta verk sem unnin eru í margvíslega miðla en markmiðið með sýningunni er að varpa ljósi á það hvernig þátttakendur túlka hinar ýmsu erkitýpur og goðsagnaverur, sem og samband okkar við náttúruna. Þannig býður Algjörar skvísur upp á áhugaverð sjónarhorn á viðkvæmni og mennsku með því að opna gátt fyrir hið yfirnáttúrulega til að flæða inn í jarðneskt líf.

Listamennirnir sem eiga verk á sýningunni eru:
Berglind Ágústsdóttir | Hrefna Sigurðardóttir
Darsha Hewitt | Svava Skúladóttir
Dýrfinna Benita Basalan | Róska
Gunnhildur Hauksdóttir | Gunnþórunn Sveinsdóttir
Hildur Ása Henrýsdóttir | Kíkó Korriró
Hulda Vilhjálmsdóttir | Kjarval
Veronica Brovall | Sóley Eiríksdóttir

Sýningarstjórar eru Jasa Baka og Petra Hjartardóttir.

Sýningin er sú fimmtánda í haustsýningarröð Hafnarborgar, þar sem sýningarstjórum býðst að senda inn tillögu að sýningu í safninu og láta rödd sína heyrast í gegnum opið umsóknarferli ár hvert.