Staldraðu við – listamannaspjall

Laugardaginn 10. maí kl. 14 bjóðum við ykkur velkomin á listamannaspjall með þeim Ingibjörgu Sigurjónsdóttur og Kristni Má Pálmasyni, ásamt Birgi Snæbirni Birgissyni, sem er annar sýningarstjóra, en öll eiga þau verk á sýningunni Staldraðu við. Þá munu þau meðal annars fjalla um eigin listsköpun og verk sín í samhengi sýningarinnar.

Sýningin Staldraðu við beinir sjónum að listinni sem ferli og getu hennar til að tengjast áhorfandanum og umhverfi sínu. Hún vekur einnig upp spurningar um hvað gerist þegar við stöndum frammi fyrir verkum sem krefjast þess að við tökum þátt, verðum fyrir áhrifum og dveljum í augnablikinu. Verkum sem, í einlægni sinni og nánd, taka áhættu og ögra okkur til að hægja á og sökkva okkur í upplifunina.

Ingibjörg Sigurjónsdóttir vinnur með fundna og hversdagslega hluti og efni sem opinbera jafnvel nýjan og hverfulan léttleika tilverunnar þegar þeir eru teknir úr upprunalegu samhengi. Kristinn Már Pálmason vinnur svo með tákn, form og brot sem mynda samsetningar eða kerfi sem minnir á sjálfstætt tungumál eða myndletur. Þrátt fyrir að nota mismunandi aðferðir eiga þau það sameiginlegt að vinna með efni sem geymir jafnvel leifar af fortíðinni og vekja þannig áhorfandann til umhugsunar um minni, umbreytingu og hið síbreytilega eðli merkingar.

Samhliða sýningunni kemur út bókin Linger, með greinum eftir Mika Hannula, sýningarstjóra. Ritstjóri er Birgir Snæbjörn Birgisson og Sigrún Sigvaldadóttir annaðist hönnun bókarinnar. Útgefandi er Hunang og er útgáfan styrkt af Myndstefi og Hafnarborg.

Ókeypis aðgangur – sjáumst í Hafnarborg.