Síðdegistónar – Kvartett Rebekku Blöndal

Föstudaginn 20. september kl.18 mun kvartett söngkonunnar Rebekku Blöndal koma fram á næstu Síðdegistónum í Hafnarborg. Þessi nýlegi kvartett samanstendur af Rebekku, sem syngur, gítarleikaranum Andrési Þór, Matthíasi Hemstock á trommum og Birgi Steini Theódórssyni á kontrabassa. Kvartettinn flytur nýlegt efni sem er væntanlegt til útgáfu frá Rebekku í bland við eldra efni og efni eftir aðra höfunda.

Tónlist Rebekku mætti lýsa sem djass með popp- og sálarbrag. Rebekka gaf út plötuna Ljóð árið 2022 en platan hlaut góða dóma og í kjölfar hennar var Rebekka valin söngvari ársins 2022 í flokki djass- og blústónlistar á Íslensku tónlistarverðlaununum 2023.

Tónleikarnir standa í um klukkustund og er aðgangur ókeypis.

Tónleikaröðin er styrkt af Tónlistarsjóði Rannís, Menningarsjóði FÍH og Hafnarfjarðarbæ.